fbpx
Laugardagur 10.maí 2025
Kynning

Hlöllabátar: Klassískur skyndibiti sem bragð er að!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 4. mars 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pinnabátur.

Hlöllabátar eru órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni enda er um að ræða einn elsta íslenska skyndibitastað landsins. „Þetta byrjaði allt fyrir um 30 árum í litlum skúr á Steindórsplani, en í dag er Hlöllabáta að finna víðs vegar um landið,“ segir Elín Guðný Hlöðversdóttir, rekstrarstjóri Hlöllabáta. „Við rekum fjóra Hlöllabátastaði á höfuðborgarsvæðinu.“ Þá eru einnig Hlöllabátar á Akureyri og Selfossi.

Línubátur með skinku.

Algert leyndarmál!

Hlöllabátar voru stofnaðir árið 1986 og var New York-bátur fyrsti báturinn og í kjölfarið komu þrír aðrir bátar;  Línubátur, Rifjabátur og Pinnabátur. Þetta eru klassískir bátar sem bragð er að! „Allir okkar bátar eru með okkar eigin Hlöllasósu og Hlöllakryddi. Þessi tvö hráefni; sósan og kryddið, eru hluti af því sem gerir Hlöllabáta einstaka.“

Beikonbátur.

36 bátar á matseðlinum

„Þessir fjórir bátar voru upphafið og síðan hefur bæst við fjöldi annarra á matseðilinn. Í dag telur matseðillinn þrjátíu og sex báta með hinum ýmsu áleggjum. Við höfum verið dugleg að bæta við listann en höfum ekki tekið af honum. Þó svo það séu alltaf um tíu til fimmtán bátar sem eru hvað vinsælastir, þá gætu einhverjir orðið svekktir ef uppáhaldsbáturinn þeirra yrði tekinn af matseðlinum.“

Netabátur.

Vinsæll skyndibiti

Á síðasta ári tók nýr eigendahópur við rekstrinum á fjórum Hlöllabátastöðum á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum í samstarfi við hina staðina. Reksturinn hefur gengið vonum framar enda er stór hópur tryggra viðskiptavina og hefur sá hópur farið stækkandi undanfarið ár. Við leggjum mikið upp úr gæðum, hraða og góðu viðmóti starfsfólks sem er duglegt og ávallt tilbúið að gera vel.“

New York bátur. Sá upprunalegi!

Með leyniuppskrift að vopni!

„Það eru ekki bara Íslendingar sem borða Hlöllabáta heldur hafa erlendir ferðamenn einnig verið að komast á bragðið og margir sem koma hingað aftur og aftur á meðan þeir eru á landinu, sem hefur verið okkur mikil hvatning. Við erum ákaflega spennt með framhaldið og hvað varðar framtíðina og viljum ávallt reyna að nýta reynslu dagsins í dag til að geta gert betur á morgun,“ segir Elín.

Staðirnir okkar fjórir:

Smáralind, Hagasmári 1–3, 201 Kópavogur.

Atlantsolíuplanið, Sunnukrika 3, 270 Mosfellsbær.

Faxafen 9, 108 Reykjavík.

Bíldshöfði 5a, 110 Reykjavík.

Nánari upplýsingar á Facebook: Hlöllabátar, hinn eini sanni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea