fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Kynning

Upplyfting vinnulyftur: Liprari og ódýrari

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. nóvember 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margur er knár þó að hann sér smár – Upplyfting vinnulyftur er fyrirtæki sem nýtir sér smæð sína á markaðnum. Lipur þjónusta, hagstætt verð og umhverfisvæn starfsemi eru á meðal helstu einkenna fyrirtækisins sem leigir út skæralyftur fyrir byggingasvæði og hvers konar viðhaldsvinnu. Hlutverk skæralyftna er að lyfta vinnumönnum upp í þá hæð sem verkefnið krefst. Helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru smærri aðilar á byggingamarkaði og svo almennir borgarar sem þurfa að nota lyftur við viðhaldsvinnu, málun og annað slíkt.

„Þetta byrjaði smátt en hefur farið vaxandi. Ég byrjaði með tvær lyftur en í dag eru þær átta og sú níunda er væntanleg um mánaðamótin,“ segir Jóhann Sigurjón Jakobsson, eigandi fyrirtækisins. Stærsta lyftan, sú sem er væntanleg, er utandyragræja og nær 15 metra vinnuhæð. Minnstu lyfturnar hafa hins vegar 5,2 metra hæð, aðrar fara upp í 7,8 metra, 9,2 og 10,2 metra.

„Þessar litlu lyftur eru einstaklega meðfærilegar. Þær vega aðeins um 500 kíló og eru það nettar að hægt er að keyra þær beint inn í lyftu í fjölbýlishúsum og öðrum byggingum. Það er ekki hægt með þessar stærri lyftur sem aðrir aðilar á markaðnum bjóða upp á,“ segir Jóhann.

Skæralyfturnar hjá Upplyftingu koma allar frá ítalska framleiðandanum Imer. Umhverfisvæn áhersla er í tækjavalinu hjá Jóhanni því allar átta lyfturnar sem hann er með núna ganga fyrir rafmagni og stóra lyftan sem er væntanleg og nær 15 metra hæð er tengitvinnvél sem gengur bæði fyrir rafmagni og dísilolíu.

Sem fyrr segir er Upplyfting mjög heppilegur aðili fyrir smærri fyrirtæki á byggingamarkaði og einstaklinga sem þurfa á góðum og öruggum skæralyftum að halda með litlum fyrirvara og á hagstæðu verði. Þess má geta að allar lyftur eru afhentar fullhlaðnar og tilbúnar til notkunar. Þær eru reglulega skoðaðar af Vinnueftirlitinu.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni upplyfting.is, í síma 892-2800 og í gegnum netfangið leiga@upplyfting.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7