fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Kynning

Uniconta: Eitt hraðvirkasta bókhaldskerfi í heimi – frá snillingnum Erik Damgaard

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 1. júní 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvö lykilatriði í rekstri fyrirtækja eru tími og peningar. Viðskiptalausnin Uniconta svarar þessum kröfum sem eitt hraðvirkasta bókhaldskerfi í heiminum og býðst notendum á áskriftarverði sem er umtalsvert hagstæðara en áður hefur þekkst hér á landi.

Með Uniconta geta fyrirtæki náð tökum á fjárhag, birgðum, verkbókhaldi, framleiðslu og tengist auk þess við önnur kerfi eins og launakerfi, afgreiðslukerfi og vefverslanir. Þrátt fyrir að bjóða upp á marga eiginleika sem henta flóknum stórfyrirtækjum er Uniconta einfalt í uppsetningu og notkun og dæmi eru um að bókarar í fyrirtækjum skili allt að 50% meiri afköstum eftir innleiðingu Uniconta.

Uniconta er skýjalausn eins og Office 365 þar sem gögnin eru vistuð í skýinu en notandinn vinnur með þau í sérstökum biðlara sem er uppsettur á tölvunni. Flest bókhaldskerfi sem standa íslenskum fyrirtækjum til boða í dag eru ekki í skýinu. Í flestum tilfellum eru þetta kerfi sem voru hönnuð á tíunda áratug síðustu aldar til uppsetningar á gagnaþjónum fyrirtækja en eru nú hýst á gagnaþjónum hjá söluaðila. Með áskrift að Uniconta er öll gögn vistuð í öruggu skýjaumhverfi og reglubundin taka afrita er tryggð.

Uniconta hentar allt frá einyrkjum upp í stærri fyrirtæki með hundruð starfsmanna og er því afar heppileg lausn á Íslandi þar sem meirihluti fyrirtækja er í smærri kantinum.

Uniconta er úr smiðju hins heimsþekkta snillings Eriks Damgaard sem meðal annars færði heiminum Dynamics AX. „Erik Damgaard mætti kalla Steve Jobs bókhaldskerfanna, slík hafa áhrif hans í þessum geira verið,“ segir Ingvaldur Thor Einarsson, framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi, sem er dreifingaraðili Uniconta hér á landi.

Erik Damgaard byggði ungur upp glæsilegan rekstur sem Microsoft keypti mörgum árum síðar fyrir háar fjárhæðir. Hann á heiðurinn af mörgum framúrskarandi lausnum í bókahaldsheiminum en nýjasta lausnin, Uniconta, hefur náð mikilli útbreiðslu Danmörku. „Uniconta er komið á markaðinn í Noregi, Hollandi og Bretlandi og er að fara í gang í Suðaustur-Asíu og Ástralíu. Kerfið hefur einnig fengið frábærar viðtökur hér á landi enda Íslendingar í fremstu röð þegar kemur að því að innleiða tækninýjungar,“ segir Ingvaldur.

Uniconta á Íslandi býður áhugasömum upp á 30 daga gjaldfrjálsa prufuáskrift að hugbúnaðinum. „Það er góður tími fyrir fólk til að átta sig á því hvernig þetta virkar og hvort það hentar þeirra rekstri,“ segir Ingvaldur.

Til að fá aðstoð við uppsetningu kerfisins og kennslu má hafa samband við Uniconta Íslandi eða þjónustuaðila. Ráðgjafar aðstoða svo viðskiptavin með innleiðingu, aðlögun og notkun kerfisins. „Það tekur allt frá nokkrum klukkustundum upp í nokkrar vikur að innleiða kerfið og kenna á það, en það stjórnast af umfangi rekstrar og þeim kröfum sem notendur gera til kerfisins,“ segir Ingvaldur.

Sífellt fleiri velja nú Uniconta fyrir sinn rekstur og rétt er að tíunda hina einföldu og afgerandi kosti kerfisins: Uniconta er eitt hraðvirkasta bókhaldskerfi í heimi – hreinræktuð skýjalausn þar sem gagnaöryggi er í fyrirrúmi – fullkomin lausn á verði sem ekki hefur sést áður hér á landi – einfalt er að innleiða og aðlaga Uniconta.

Sjá nánar á uniconta.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7