fbpx
Föstudagur 23.maí 2025
Kynning

Notuð byggingarefni fá nýtt hlutverk í Efnismiðlun Góða hirðisins

Kynning
Kynningardeild DV
Föstudaginn 1. júní 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

SORPA hefur nú rekið nytjamarkað fyrir notaðan húsbúnað og smávöru í rúmlega tuttugu ár. Markaðurinn, sem gengur undir nafninu Góði hirðirinn, hefur lengi átt vinsældum að fagna og hefur stækkað jafnt og þétt í gegnum árin. Hundruð tonna af notuðum hlutum fá þar nýja eigendur á hverju ári og allur ágóði af sölu þeirra rennur til góðgerðarmála. Markmiðið með nytjamarkaði SORPU er fyrst og fremst að stuðla að endurnotkun, sem er besta form endurnýtingar og sú leið í úrgangsmeðhöndlun sem hefur hvað minnst umhverfisáhrif.

Það hefur lengi verið draumur að finna endurnotkunarmöguleika fyrir fleiri efnisflokka sem berast á endurvinnslustöðvar SORPU, s.s. byggingarvörur. Sá draumur varð loks að veruleika þann 11. maí síðastliðinn þegar Efnismiðlun Góða hirðisins opnaði á endurvinnslustöðinni á Sævarhöfða og viðskiptavinir SORPU fengu loks tækifæri til að versla notuð byggingarefni og ýmsar aðrar framkvæmdavörur á góðu verði.

Markmiðið er að markaðurinn bjóði upp á valkosti fyrir breiðan hóp viðskiptavina og er stefnt að því að safna og bjóða efni eins og timbur, timburhluti, hurðar, glugga, innréttingar, hellur, flísar, trjáboli, vaska, parket, dekk, reiðhjól, vörubretti og brúsa svo fátt eitt sé nefnt. Á markaðnum verður einnig framboð af efni og vöru, sem jafnvel er ekki í boði annars staðar, svo sem gamlar hurðir og veðrað timbur.

Notuð byggingarefni geta nýst einstaklingum sem eru í húsnæðisbreytingum, sumarbústaðabyggingu, garðvinnu eða listsköpun. Leikskólar, grunnskólar, lista- og verkmenntaskólar hafa í gegnum tíðina óskað eftir aðgangi að ódýrara efni, sem nú verður auðveldara að koma til móts við. Vöruúrval mun þróast eftir framboði og eftirspurn en viðskiptavinir endurvinnslustöðva þurfa að gefa leyfi fyrir að efniviður fari á markaðinn. Ef hagnaður verður af sölu byggingarefna og annars varnings á markaðnum mun hann renna óskertur til góðgerðarmála.

Efnismiðlun Góða hirðisins á endurvinnslustöðinni á Sævarhöfða verður opin alla daga nema sunnudaga frá 12.00-17.30. Verið hjartanlega velkomin, hvort sem er með nothæft efni eða til að skoða vöruúrvalið á markaðnum.

Ósjálfbær neyslumenning

Íbúar jarðar og sérstaklega vestrænar þjóðir nota meira af auðlindum en hnötturinn getur staðið undir á sjálfbæran hátt. Athafnir mannsins hafa þannig haft áhrif á gæði og magn þeirra náttúrulegu auðlinda sem eru nauðsynlegar til framleiðslu á flestum okkar neysluvörum og jafnvel lífi á jörðu. Má sem dæmi nefna vatn, jarðefnaeldsneyti, jarðveg, steinefni og málma. Ástæðan er fyrst og fremst aukinn fólksfjöldi samhliða sífellt aukinni neyslu á hvern einstakling. Ef ekkert er að gert leiðir það til hnignunar og jafnvel þurrðar á mikilvægum auðlindum með ófyrirséðum afleiðingum. Önnur birtingarmynd er plastið í umhverfinu sem brotnar seint og illa niður og veldur lífríkinu skaða. Það er tímabært að endurmeta hvernig við umgöngumst auðlindir jarðar og að hver og einn taki meiri ábyrgð á eigin neyslu. Það getum við t.d. gert með því að nýta hluti áfram eftir fremsta megni eða sjá til þess að þeir komist í notkun hjá öðrum, sé það mögulegt. Flokkum þann úrgang sem frá okkur fer til endurvinnslu þannig að hráefni tapist ekki heldur séu nýtanleg sem efniviður í nýjar vörur. En fyrst og fremst búum til minna rusl því þannig komum við best í veg fyrir sóun!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7