fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Þóttist ætla að gera við húsið

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 14:39

Myndin sýnir fjölbýlishús og tengist efni fréttarinnar ekki beint. Ekki kemur fram í hvaða sveitarfélagi húsið er en ekki er ólíklegt að það sé Reykjavík þar sem málið fór fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjársvik en hann lagði fram tilboð í viðhald á fjölbýlishúsi. Tilboðinu var tekið og maðurinn fékk hluta verðsins greiddan fyrir fram. Þegar til kastanna kom vann hann hins vegar ekki verkið.

Ákæra var lögð fram í september 2025 en svikin áttu sér stað í apríl og maí 2019. Samkvæmt ákæru taldi maðurinn þremur einstaklingum, sem voru í forsvari fyrir húsfélags hússins, trú um að fjármunirnir sem þeir greiddu honum yrðu nýttir sem endurgjald fyrir vinnu og efniskostnað vegna viðhalds á fasteigninni, en hann hafi styrkt hugmyndir þeirra um að hann myndi taka að sér viðgerðir með því að senda tilboð í verkið með tölvupósti og upplýsingum um að greiða þyrfti hluta verðsins fyrir fram. Samkvæmt ákærunni hófust framkvæmdirnar aldrei og nýtti ákærði fjármunina í eigin þágu en upphæðin sem honum hefði verið greidd hafi verið millifærð á reikning í eigu hans með þremur færslum.

Alls voru manninum greiddar 993.892 krónur.

Ekki í fyrsta sinn

Ekki tókst að birta manninum ákæruna og var hún því birt í Lögbirtingablaðinu. Maðurinn mætti hins vegar ekki fyrir dóminn og var það metið sem ígildi játningar.

Maðurinn á nokkurn sakaferil að baki. Hann hlaut, með lögreglustjórasátt, sektir og sviptingu ökuréttar 2016 og 2020 vegna umferðarlagabrota. Hann var sektaður 2020 vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Árið 2023 hlaut hann dóm á Spáni vegna þjófnaðar og sama ár hlaut hann dóm hér á landi vegna brota gegn lögum um tekjuskatt, lögum um virðisaukaskatt, lögum um bókhald, umferðarlögum o.fl. Var síðarnefndi dómurinn skilorðsbundinn. Árið 2024 hlaut hann síðan níu mánaða skilorðsbundin dóm fyrir umferðarlagabrot en af þeim voru sex mánuðir skilorðsbundnir.

Það var metið manninum til refsiauka að hann framdi fjársvikin áður en hann hlaut dómana 2023 og 2024. Á móti var tekið tillit til þess að langt var um liðið frá svikunum.

Við hæfi þótti því að dæma manninn í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“
Fréttir
Í gær

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði
Fréttir
Í gær

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt