fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fréttir

Vinnuslys í Korngörðum í morgun – Alvarlegur atburður að sögn lögreglu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. mars 2026 08:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinnuslys varð í Korngörðum Reykjavík í morgun þegar þar varð sprenging í húsi Fóðurblöndunnar, en tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta.

Viðbragðsaðilar héldu strax á vettvang, en ljóst er að um alvarlegan atburð er að ræða.

Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að fólk haldi sig fjarri staðnum, bæði til að trufla ekki störf viðbragðsaðila og eins til að tryggja greiða aðkomu þeirra til og frá  vettvangi.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri á stöð 1 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir við RÚV að töluvert viðbragð væri í gangi. Hann sagði ekkert staðfest um meiðsl en að einhverjir hefðu slasast.

Mbl.is greinir frá að nokkrir eru slasaðir og hafi verið fluttir á slysadeild eftir sprengingu í verksmiðjuhúsnæði.

„Við fengum upplýsingar um að einhverjir hafi verið inni í húsnæðinu þegar sprengingin átti sér stað. Við erum búnir að fara um húsið og safna saman fólki sem var í og við húsið. Það eru einhverjir slasaðir og það er er verið að sinna þeim og flytja nokkra á slysadeild,“ segir Sveinbjörn Berentsson deildarstjóri á aðgerðarsviði slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu við Mbl.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Færri flytja til Íslands

Færri flytja til Íslands
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Langvarandi nágrannaerjur í Laugardal halda áfram – „Mjög íþyngjandi fyrir okkur“

Langvarandi nágrannaerjur í Laugardal halda áfram – „Mjög íþyngjandi fyrir okkur“
Fréttir
Í gær

Handtóku mann sem braust inn til flóðhestsins fræga – Mæðgurnar fengu áfallahjálp

Handtóku mann sem braust inn til flóðhestsins fræga – Mæðgurnar fengu áfallahjálp
Fréttir
Í gær

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka