Airbnb íbúðin sem leikkonan Hayden Panettiere lést í hefur nú verið auglýst aftur til útleigu. Gestur segir að svefnsófinn sem hún fannst í hafi verið hreinn og að dvölin hafi verið góð.
Miðillinn TMZ greinir frá þessu.
Hin 36 ára Panettiere lést þann 16. ágúst síðastliðinn í leiguíbúð í Greenville í Suður Karólínu fylki í Bandaríkjunum. Greenville er 70 þúsund manna borg, mitt á milli stórborganna Atlanta og Charlotte.
Svefnsófinn hreinn
Bróðir hennar Brian Hickerson og bróðir hans fundu Panettiere látna. Dánarorsök hefur verið úrskurðuð ofneysla af völdum fentanýls. Fleiri efni fundust í blóðrás hennar, svo sem kvíðastillandi og vöðvaslakandi lyf.
Sjá einnig:
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
Íbúðin var tekin úr leigu eftir andlát leikkonunnar en nú hefur hún verið auglýst aftur til útleigu á Aribnb. Það er eins svefnherbergis og eins baðherbergis íbúð á vegum félagsins Judson Mill Lofts.
Einn gestur sem dvaldi nýlega í íbúðinni segir að sér hafi líkað dvölin vel. Sagði hann að svefnsófinn sem leikkonan fannst látin á hafi verið hreinn.
Glímdi við mikinn vanda
Panettiere hóf leikferil sinn ung að árum en varð heimsþekkt fyrir hlutverk klappstýrunnar Claire Bennet í sjónvarpsþáttunum Heroes. Síðar hlaut hún mikið lof fyrir túlkun sína á söngkonunni Juliette Barnes í Nashville og var meðal annars tvívegis tilnefnd til Golden Globe-verðlauna.
Panettiere hafði á undanförnum árum rætt opinskátt um erfið tímabil í lífi sínu. Hún greindi meðal annars frá langvarandi fíknivanda sem hefði hafist þegar hún var aðeins 15 ára og sagði vandann hafa ágerst þegar hún glímdi við fæðingarþunglyndi eftir fæðingu dóttur sinnar árið 2014.
Hún lætur eftir sig ellefu ára dóttur, Kaya, sem hún eignaðist með fyrrverandi unnusta sínum, úkraínska hnefaleikakappanum Wladimir Klitschko. Kaya býr nú í Evrópu.