
Birt hefur verið í Lögbirtingablaðinu greiðsluáskorun fyrir hönd lífeyrissjóðsins Gildi á hendur fyrirtæki sem er í eigu og undir stjórn aðila með óþekkt heimilisföng. Þegar stefnuvottur mætti á skráð heimilisfang fyrirtækisins fannst hvorki tangur né tetur af því, það er ekki skráð í símaskrá og við leit í netheimum finnast engar upplýsingar um fyrirtækið aðrar en skráning þess í fyrirtækjaskrá.
Um er að ræða fyrirtækið Polar experts ehf en samkvæmt greiðsluáskorun Gildis skuldar fyrirtækið ógreidd iðgjöld í lífeyrissjóð og endurhæfingarsjóð samlvæmt skilagreinum vegna júlí 2025 til og með október 2025.
Stendur krafan nú, með dráttarvöxtum og innheimtukostnaði í 8,8 milljónum króna.
Í greiðsluáskoruninni segir að fyrirtækið sé skráð með lögheimili að Höfðabakka 9 í Reykjavík en samkvæmt birtingavottorði stefnuvotts þekkist fyrirtækið ekki á þeim stað. Skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri þess sé með óþekkt heimilisfang og sama gildi um varamann í stjórn. Starfsstöð fyrirtækisins sé því óþekkt. Fyrirtækið er heldur ekki skráð í símaskrá en að Höfðabakka er fjöldi aðila með ýmis konar atvinnustarfsemi.
Framkvæmdastjórinn er skráður sem eigandi 100 prósent hlutafjár í fyrirtækinu. Hann er rúmenskur ríkisborgarari og varamaðurinn í stjórn er einnig með rúmenskt nafn. Báðir eru þeir með íslenskar kenntitölur.
Fyrirtækið var stofnað í júní á síðasta ári, samkvæmt fyrirtækjaskrá en það var skráð í virðisaukaskattskrá 1. júlí en afskráð úr síðarnefndu skránni í desember.
Skráður tilgangur starfseminnar er bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
Miðað við hins vegar að fyrirtækið var afskráð úr virðisaukaskattskrá virðist engin starfsemi fara fram í því, að minnsta kosti engin virðisaukaskattskyld starfsemi. Enn fremur hefur það ekki skilað ársreikningi fyrir síðasta ár.
Við fljótlega leit í netheimum finnast engar upplýsingar um fyrirtækið aðrar en þær sem fram koma í fyrirtækjaskrá.
Í ljósi alls þessa má því vel kalla fyrirtækið huldufyrirtæki.
Enn fremur segir í greiðsluáskoruninni að skuldin sé öll í gjalddaga fallin og skorað sé á fyrirtækið og umrædda forsvarsmenn að greiða skuldina innan 3 vikna frá birtingu greiðsluáskorunarinnar eða að öðrum kosti lýsa því skriflega yfir innan 3 vikna frá birtingu áskoruninnar að fyrirtækið verði fært um að greiða skuldina innan skamms og færa fyrir því sönnur.
Greiðsluáskorunin sé birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hafi verið unnt að afla upplýsinga um hvar birta megi greiðsluáskorunina eftir almennum reglum. Vakin sé einnig athygli á því að heimilt sé að óska eftir gjaldþrotaskiptum á búi fyrirtækisins ef ekki verði orðið við áskoruninni.