

Juliette Kenny lést laugardaginn 14. mars, innan við sólarhring eftir að hún sýndi fyrst einkenni veikindanna. Tilfelli heilahimnubólgu hafa undanfarið greinst víða í Kent og einnig í London. Í gær var greint frá því að 27 hefðu smitast og tveir látist.
Samkvæmt föður hennar, Michael Kenny, var Juliette hraust og við góða heilsu fram að veikindunum. Hún hafði meðal annars lokið verklegu mati í íþróttum í skóla sínum, Queen Elizabeth’s Grammar School í Faversham, aðeins tveimur dögum áður en hún veiktist.
Michael segir fyrstu merki um veikindin hafa komið fram snemma að morgni föstudagsins 13. mars þegar hún kastaði upp. Síðar sama morgun var hún flutt á bráðamóttöku vegna litabreytinga á kinnum. Þá voru engin önnur einkenni augljós. Hún fékk sýklalyf og var síðan flutt með sjúkrabíl á slysadeild þar sem hún barðist við sjúkdóminn í nokkrar klukkustundir.
„Þrátt fyrir frábæra umönnun heilbrigðisstarfsfólks tóku veikindin hana frá okkur innan við 12 klukkustundum síðar,“ sagði Kenny í yfirlýsingu sem Daily Mail vitnar til. Hann lýsti dóttur sinni sem manneskju með mikla jákvæða orku og sagði missinn óbærilegan fyrir fjölskyldu og vini.
Amma hennar, Linda Kenny, sagði að nánir ættingjar væru nú á sýklalyfjum þar sem þeir hefðu verið viðstaddir á sjúkrahúsinu þegar Juliette lést.
Í samstarfi við samtökin Meningitis Research Foundation hefur fjölskyldan nú hvatt bresk stjórnvöld til að bæta aðgengi ungmenna að bólusetningu gegn svokölluðum B-stofni heilahimnubólgu. Þau telja að hægt sé að koma í veg fyrir svipaðan harmleik með aukinni vernd og fræðslu.
Bólusetning gegn heilahimnubólgu B var tekin upp fyrir ungbörn í breska heilbrigðiskerfinu árið 2015. Flest ungmenni sem fæddust fyrir þann tíma hafa þó ekki fengið slíka vernd nema þau hafi sóst sjálf eftir því og greitt sérstaklega fyrir bólusetningu.
Samtökin segja fyrri ákvarðanir um að bjóða ekki upp á bólusetninguna fyrir alla áhættuhópa hafa byggst á mati á kostnaðarhagkvæmni sem taki ekki nægjanlegt tillit til alvarleika sjúkdómsins og langvarandi afleiðinga hans.
Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að enginn sérstakur viðbúnaður sé hér á landi vegna faraldursins í Englandi. Er haft eftir Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni bólusetninga hjá embætti landlæknis, að engin sérstök viðbrögð séu hjá embættinu vegna faraldra í öðrum löndum nema líklegt sé að smit berist hingað. Það sé ekki augljóst í þessu tilviki.