

Ruben Ayco, bróðir hins bandaríska Jeffrey Ayco sem lést þegar íshellir hrundi í Breiðamerkurjökli árið 2024, sakar ferðaþjónustufyrirtækið um græðgi og segir að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir slysið. Ólétt mágkona hans slasaðist og lengi vel var ekki einu sinni vitað hversu margir voru undir ísnum.
Þetta kemur fram í frásögn manns að nafni M. Jackson í langri frásögn á miðlinum Grist. En Jackson starfaði sjálfur í ferðaþjónustunni á Íslandi, við jöklaferðir, og er gagnrýninn á það hvernig sum ferðaþjónustufyrirtæki hegðuðu sér í þessum íshellaferðum. Það er fóru í ferðir um sumar, þegar ísinn er að bráðna, og notuðu jafn vel eldvörpur og stórtækar vinnuvélar til þess að búa til aðstæður til að komast í hella.
Slysið átti sér stað þann 25. ágúst árið 2024 í 25 manna ferð á vegum fyrirtækisins Ice Pic Journeys, í eigu hinna bandarísku Mike Reid og Ryan Newburn.
Fyrstu fréttir af málinu voru á þann veg að íshellir hefði hrunið á hópinn og óvíst hversu margir væru fastir undir eða fyrir innan fargið. Seinna kom í ljós að það var ísveggur á milli hellismunna sem hrundi á tvo ferðamenn, bandarísk hjón.
Jackson var ekki á staðnum en hefur fylgst vel með og rannsakað tildrög slyssins. Meðal annars skoðað lögregluskýrslurnar og rætt við ættingja.
„Ég er ólétt. Ég get ekki andað,“ voru fyrstu orðin sem heyrðust eftir að veggurinn hrundi. Síðan heyrðist: „Hvar er eiginmaður minn?“
Tveir leiðsögumenn stukku til og lyftu ísklumpi af konunni sem var slösuð. Þeir reyndu líka að losa ísinn af eiginmanni hennar, en gátu það ekki. Allir stukku til og réðust á ísinn, með ísöxum eða berum höndum. Smám saman náði hópurinn að losa manninn undan ísnum. Líkami hans var kraminn en engu að síður var reynt að hnoða í hann lífi. Það gekk ekki.
Björgunarsveitir og viðbragðsaðilar komu fljótt á staðinn og við tók ringulreið. Leiðsögumennirnir vissu ekki hvort fleiri væru undir ísnum. Tveir hefðu ekki mætt í ferðina en hugsanlega hefðu fleiri bæst við. Byrjað var að grafa og grafa og grafa. Á meðan það var möguleiki á að einhver væri undir farginu var grafið. Blessunarlega reyndist svo ekki vera.

En skaðinn var samt skeður. Flogið var með óléttu bandarísku konuna í þyrlu á sjúkrahús. Eiginmaður hennar, Jeffrey Ayco að nafni, var látinn 30 ára gamall.
„Bróðir minn, líf hans var rétt að byrja,“ hefur Jackson eftir Ruben Ayco bróður hins látna Jeffrey, sem var í sjóhernum. „Hann var bara þarna að skoða íshellana. Hann var mjög ævintýragjarn maður.“
En hann segir jafn framt að þetta slys hefði ekki þurft að gerast. En eins og vel hefur komið fram hafa íshellaferðir á sumrin verið harðlega gagnrýndar. Íshellar séu sífellt að breytast og bráðna hratt á sumrin. Þennan dag í ágúst hafi mátt sjá loft í ísnum, hann var ekki skærblár. En loft ber merki þess að ísinn sé að bráðna og er þar af leiðandi hættulegur.
„Ýmis atriði hefði verið hægt að taka til að koma í veg fyrir þetta,“ er haft eftir Ruben. „Það lítur út fyrir að græðgi og gróði hafi toppað það.“
Eiginkona Jeffrey Ayco komst heilu og höldnu heim til sín og eignaðist barnið, litla stúlku.
„Hún lítur út eins og hann,“ sagði Ruben um stúlkuna sem er eins árs í dag. En hún hitti aldrei föður sinn.