

Lögreglukonan Aníta Rut Hrðardóttir hefur verið sakfelld fyrir brot í starfi eftir að hún fletti vandamönnum og öðrum sem þeim tengdust upp í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE. Frá þessu greinir RÚV.
Aníta var ákærð í nóvember og gert að sök að hafa ítrekað notfært sér LÖKE til að fletta upp málum sem vörðuðu vandamenn hennar og aðra sem þeim tengdust. Uppflettingarnar voru allar gerðar sama daginn og tengdust sex málum í málaskránni. Aníta skoðaði alls 20 bókanir.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Aníta kemst í fréttir en árið 2020 kom upp Fánamálið svokallaða eftir að mynd birtist af Anítu Rut í einkennisfatnaði sínum sem hún hafði fest á merki sem þóttu vísa til rasisma og öfgaskoðana. Um sléttu ári síðar vakti hún aftur athygli fyrir ummæli sem hún lét falla um baráttusamtökin Öfga og um Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur. Aníta hlaut í framhaldinu áminningu í starfi og var svo flutt til í starfi svo hún hefði ekki mögulega aðkomu að tilkynningum þolenda kynferðisbrota.
Annar lögreglumaður, sem einnig var ákærður fyrir brot í starfi, var sýknaður en honum hafði verið gert að sök að koma fyrir hlerunarbúnaði í bíl grunaðs manns án dómsúrskurðar.