

Lögreglan í Tælandi hefur handtekið mann sem braust inn til Moo Deng, hins fræga flóðhestskálfs í dýragarðinum Khao Kheow Open Zoo. Maðurinn virtist vera að taka myndir af Moo Deng og móður hennar.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Smáflóðhesturinn Moo Deng verður tveggja ára í sumar. Hún sló í gegn haustið 2024 þegar myndbönd dýragarðsstarfsfólks fóru á flug á samfélagsmiðlum. Hefur hún gjarnan verið kölluð „mesta krútt heims.“
Samfara vinsældum hennar á samfélagsmiðlum þá hefur dýragarðurinn grætt mikið á frægð hennar. En gestir koma, jafn vel frá öðrum heimsálfum, gagngert til þess að líta hana augum.
Nú er svo komið að ágangur fólks er byrjað að ógna kálfinum og fjölskyldu hennar. Á þriðjudag var maður handtekinn eftir að hafa brotist inn í búrið til hennar.
Að sögn dýragarðsstjórans Naronqwit Chodchoy er maðurinn tælenskur ríkisborgari, karlmaður sem laumaðist inn í búrið á meðan starfsfólk og aðrir gestir sáu ekki til. Maðurinn var klæddur í grænan bol og brúnar stuttbuxur, með svarta húfu og sólgleraugu eins og sást í öryggismyndavélum.
Gekk hann að Moo Deng og móður hennar Jona með spjaldtölvu á lofti. Væntanlega að taka upp myndefni af þeim.
Að sögn herra Chodchoy var hinn grunaði inni í búrinu í um tvær mínútur áður en starfsfólkið tók eftir honum. Var strax hringt á lögregluna en maðurinn gerði enga tilraun til þess að flýja.
Lögreglan kom á staðinn og handtók manninn. Hann hefur nú verið ákærður fyrir að fara inn í búrið í leyfisleysi. Þá íhugar dýragarðurinn að krefjast þyngstu refsingar, enda vill hann ekki að það myndist fordæmi fyrir því að gestir valsi inn í búr dýranna.
Að sögn Chodchoy reyndi maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, ekki að snerta Moo Deng eða móður hennar. En engu að síður virtist þeim vera mjög brugðið við þessa óvæntu og óvelkomnu heimsókn og hafa fengið aðhlynningu dýralæknis.