fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. mars 2026 09:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd- og rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir sýnir skissu- og hugmyndaferlið á bak við nokkrar af bókum sínum á spennandi sýningu í Borgarbókasafninu Grófinni.

Á sýningu Bergrúnar Írisar fá áhorfendur innsýn inn í marglaga starf höfundar sem bæði skapar sögur og myndir. Meðal verka eru skissur úr bókunum Vinur minn, vindurinn, Töfralandið, Langelstur í bekknum og hinum sívinsælu sögum um Freyju og Fróða sem Bergrún Íris skapaði ásamt rithöfundinum Kristjönu Friðbjörnsdóttur.

Bergrún Íris á að baki langan og farsælan höfundarferil og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín. Fyrsta bók hennar Vinur minn, vindurinn, sem kom út árið 2014, var til að mynda tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barna- og unglingbókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá hefur Bergrún Íris meðal annars hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og unglingabóka, Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Vestnorrænu barnabókaverðlaunin.

Sýning Bergrúnar Írisar í Grófinni er hluti af sýningaröðinni Skissur verða að bók…um! þar sem myndhöfundar leyfa gestum og gangandi að fylgjast með hugmyndavinnu og skissugerð sem að lokum verða að fullsköpuðum myndum í barnabókum.

Boðið verður upp á smiðju í tengslum við sýninguna.

Ókeypis er inn á sýninguna og smiðjuna.

Nánar um höfundinn

Bergrún Íris er fædd árið 1985 og býr í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni. Bergrún útskrifaðist með BA-gráðu í listfræði úr Háskóla Íslands 2009, lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík vorið 2012 og sótti sumarskóla í barnabókagerð í Anglia Rushkin, Cambridge School of Art.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ísland.is sagt ekki uppfylla EES-reglur

Ísland.is sagt ekki uppfylla EES-reglur
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Í gær

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo