Fimm sæta ákæru fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að ráðast á einn með þeim afleiðingum að þolandi hlaut áverka á höfði, auga og augntóft, auk þess að glíma við áfallastreitu eftir líkamsárásina. Þolandinn hafði áður komið öðrum til aðstoðar sem fimmmenningarnir réðust.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Fimmmenningarnir eru ákærðir eftir því sem segir í ákærunni:
„með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 17. mars 2022, á bifreiðastæði verslunar Hagkaups í Garðabæ, í félagi, veist með ofbeldi að T, í kjölfar þess að T kom E til aðstoðar sem ákærðu höfðu ráðist á, með því að slá T í jörðina og sparka og stappa ítrekað á höfði hans og búk þar sem hann lá á jörðinni, allt með þeim afleiðingum að T hlaut marga yfirborðsáverka á höfði, áverka á auga og augntótt auk áfallastreitu.“
Telst þetta varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Fyrir hönd þolanda er þess krafist að ákærðu verði gert að greiða kröfuhafa in solidum skaða- og miskabætur að fjárhæð 2.000.000 kr., auk vaxta. Jafnframt er krafist þóknunar vegna starfa réttargæslumanns úr ríkissjóði samkvæmt mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti.