fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fréttir

Blaut tuska í andlit skátanna frá Hafnarfjarðarbæ – „Við erum ekkert að reka þetta tjaldsvæði af því okkur finnst það skemmtilegt“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. júní 2025 18:00

Bjarni Freyr gagnrýnir uppsögnina á samningnum. Mynd/Hraunbúar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstur skátafélagsins Hraunbúa og skátaheimilisins við Víðistaðatún er í uppnámi eftir að Hafnarfjarðarbær rifti samningi um rekstur tjaldsvæðisins. Skátaforingi segir skátana í bænum hafa fengið blauta tusku í andlitið og gagnrýnir hvernig að uppsögninni var staðið.

„Þetta þýðir að rekstrarhæfi hússins er í hættu,“ segir Bjarni Freyr Þórðarson, félagsforingi hjá skátafélaginu Hraunbúum. „Við erum fjölmennasta skátafélag landsins og erum mjög öflug á okkar sviði. Þetta er eina skátaheimilið á landinu sem er hannað og smíðað fyrir skátastarf. Þetta væri þvílíkur missir fyrir öflugt félag að missa þennan tekjupóst. Þá þyrfti að koma til móts við reksturinn með fjárframlögum eða öðrum hætti.“

Hraunbúar fengu lóðina við Víðistaðatún í gjöf árið 1990 og hafa rekið tjaldsvæðið á túninu fyrir Hafnarfjarðarbæ til að standa straum af rekstri þess. Stærð hússins tekur mið af því að verið sé að reka tjaldsvæðið.

Gerðir eru samningar til nokkurra ára í senn og sá síðasti átti að gilda til ársins 2026. Fyrir utan rekstur tjaldsvæðisins tekur hann á ungmennastarfi, sumarnámskeiðum, foringjaþjálfun og fleiru. En nú hefur Hafnarfjarðarbær rift samningnum einhliða og skátarnir eru slegnir.

Fór illa í rigningu

Ástæðan er sú að eftir mikið rigningarsumar urðu skemmdir á tjaldsvæðinu. Að sögn Bjarna Freys koma um 80 prósent kúnnanna með ferðavagna eða á húsbílum, því koma stanslaust dekk inn og út af svæðinu.

Þetta fór mjög illa í stanslausum rigningum og mat garðyrkjumeistari það svo að þarna hafi orðið varanlegt tjón. Það þyrfti að skipta um torfið á þessu svæði. Fulltrúar bæjarins voru hins vegar ekki á því að bærinn ætti að bæta þetta.

„Æskulýðsfulltrúinn og garðyrkjustjórinn vilja gera okkur ábyrg fyrir þessum skemmdum sem verða til út af rigningu. En í samningnum kemur mjög skýrt fram að rekstrarkostnaður liggi á rekstraraðila en viðhaldskostnaður, sérstaklega stórt viðhald, sé eftir eignarhaldi. Hafnarfjarðarbær er eini eigandi tjaldsvæðisins og þjónustuhússins við það,“ segir Bjarni Freyr.

Skátaheimili Hraunbúa við Víðistaðatún. Mynd/Hraunbúar

Umræðan fór á flug í vor og skátarnir lögðu fram málamiðlunartillögu. Það er að þeir myndu bjóða fram sjálfboðaliða í vinnu við að leggja torfið en bærinn keypti efnið. Þessi tillaga fékk hins vegar enga afgreiðslu. Niðurstaðan var frekar sú að umhverfis og framkvæmdaráð legði til að samningnum yrði sagt upp. Stendur vilji til að loka tjaldsvæðinu alveg.

Ekki skemmtilegt að reka tjaldsvæði

Bjarni Freyr segist ekki enn þá vera búinn að gera athugasemdir við þetta. Þetta væri nýskeð og væri eins og blaut tuska í andlitið á félagsmönnum. Aðspurður um framtíðina segist hann sjá fyrir sér tvær sviðsmyndir.

„Við erum ekkert að reka þetta tjaldsvæði af því okkur finnst það skemmtilegt. Þetta er nauðsynlegt fyrir rekstur hússins og rekstur félagsins. Ég vill endilega að við fáum annað hvort að halda áfram rekstri eða að bærinn komi að rekstri skátafélagsins með öðrum og meiri hætti,“ segir hann.

Brotin stjórnsýsla

Einnig gagnrýnir hann hversu illa hafi verið staðið að uppsögninni. Það er að eftir að tillagan hafi verið lögð fram um endurskoðun og uppsögn í umhverfis og framkvæmdaráði en íþrótta og tómstundanefnd eigi eftir að afgreiða málið.

„Í millitíðinni er embættismaður, íþrótta og tómstundanefndar, starfsmaður bæjarins, búinn að segja samningnum upp án samráðs við nefndina sem á að afgreiða hana. Þetta er alveg ofboðslega brotin stjórnsýsla,“ segir hann.

Uppfært kl. 19:35

Bjarni Freyr greindi DV frá því rétt í þessu að Hafnarfjarðarbær hafi brugðist við gagnrýninni og fellt uppsögnina á samningnum úr gildi. Hann segir að viðræður haldi áfram um endurskoðun samningsins á betri forsendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk