Heppinn Lottó spilari var einn með fjórfaldan fyrsta vinning í Lottó útdrætti vikunnar og fær hann rúmar 53,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var í áskrift.
Fimm miðahafar voru með bónusvinninginn sem færir hverjum þeirra rúmar 127 þúsund krónur. Einn er í áskrift, þrír keyptu á lotto.is og einn í appinu.
Enginn var með fyrsta vinning í Jóker en fjórir nældu sér í 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur. Tveir miðar er í áskrift, einn keyptur á lotto.is og einn í appinu.
Heildarfjöldi vinningshafa í þessum útdrætti var 8.761.