fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. júní 2025 17:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungi öryrkinn Jakub Polkowski vakti mikla athygli árið 2023 þegar hús hans í Reykjanesbæ var selt nauðugnarsölu. Jakob hafði keypt húsið fyrir bætur sem hann fékk eftir læknamistök sem hann varð fyrir á unglingsárum sem höfðu í för með sér heilaskaða og varanlega örorku. Hann átti hús sitt skuldlaust og segist ekki hafa áttað sig á því að honum bæri skylda til að greiða opinber gjöld og tryggingar. Húsið var selt nauðungarsölu út af vanskilum opinberra gjalda sem námu um 2,5 milljónum. Húsið var selt útgerðarmanni á nauðungarsölunni fyrir aðeins 3 milljónir og þar með voru bæturnar sem Jakob fékk eftir að líf hans breyttist til frambúðar horfnar sem og heimili hans og fjölskyldunnar.

Málið vakti gífurlega reiði. Það var fyrirtækið Sæstjarnan ehf. sem átti hæsta boð, 3 milljónir, en félagið er í eigu feðgnanna Kristins Guðmundssonar og Jónasar Sigurðar Kristinssonar. Sæstjarnan seldi húsið síðar á 78 milljónir og græddi því 75 milljónir á sölunni.

Málið vakti mikla reiði og var Sæstjarnan hvött til að draga kaupin til baka. Eigandi félagsins sagðist þó ekki hafa gert nokkuð rangt.

Jakob hefur nú stefnt kaupanda hússins, ríkinu og Reykjanesbæ til greiðslu 59 milljóna króna. Vísir greinir nú frá því að Sæstjarnan hafi vegna málaferlanna farið fram á að Jakob leggi fram 1,45 milljónir í málskostnaðartryggingu. Jakob væri nefnilega ekki borgunarmaður fyrir málskostnaði sem hann kynni að vera dæmdur til að greiða ef hann tapi málinu. Sæstjarnan vísaði til þess að Jakob sé öryrki sem í dag búi í félagslegu húsnæði, hjá honum hafi í þrígang verið gert árangurslaust fjárnám og eins hafi hann komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnabrota, vopnalagabrota og fyrir brot gegn valdstjórninni.

Héraðsdómur hefur fallist á kröfu Sæstjörnunnar og gert Jakob að reiða fram 1,1 milljón í málskostnaðartryggingu, Landsréttur hefur staðfest úrskurðinn og Hæstiréttur hefur hafnað kæruleyfisumsókn unga öryrkjans. Hann þarf því að leggja fram 1,1 milljón ef hann vill halda máli sínu til streitu.

Sjá einnig:Mikil reiði eftir að tugmilljóna einbýlishús í Reykjanesbæ var selt undan öryrkja á þrjár milljónir – „Hvaða sál er í þessu fólki?“

Uppfært: Í fyrstu útgáfu fréttar gerði blaðamaður neyðarlegar innsláttarvillur í fyrirsögn og í tvígang í texta sem nú hafa verið leiðréttar. Blaðamaður biðst velvirðingar. Þar átti að sjálfsögðu að standa nauðungarsala en ekki nauðgunarsala.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum
Fréttir
Í gær

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar
Fréttir
Í gær

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“
Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“