fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fréttir

Grunaður um stórfelld brot í nánu sambandi gegn konu og 2 dætrum þeirra – Neitaði að undirrita Selfossleið og nálgunarbann staðfest

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. júní 2025 17:00

Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint Mynd: Shutterstock

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmanni á Suðurnesjum hefur verið gert að sæta nálgunarbanni til miðvikudagsins 12. nóvember 2025 kl. 16:00, þannig að lagt er bann við því að hann veiti fyrrum konu sinni og tveimur dætrum þeirra eftirför, nálgist þær á almannafæri eða annars staðar þar sem þær er að finna, hringi í heima-, vinnu eða farsíma þeirra, sendi þeim tölvupóst eða setji sig á annan hátt í beint samband við þær.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók ákvörðun um nálgunarbannið 12. maí síðastliðinn, og staðfesti héraðsdómur Reykjaness hann 19. Maí og Landsréttur þann 26. maí. 

Málavextir eru raktir í niðurstöðu Landsréttar og héraðsdóms.  

Ákæra var gefin út gegn manninum 19. maí 2025 þar sem honum eru gefin að sök margvísleg brot gagnvart öllum þremur brotaþolum frá árinu 2017 til loka árs 2024. Rökstuddur grunur er um að kærði hafi framið langvarandi stórfelld brot í nánu sambandi gegn öllum þremur brotaþolum málsins. Brotin eru samkvæmt ákæru talin varða meðal annars við 217. og 218. 2 gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til þessa töldu dómstólar fullnægt því skilyrði að rökstuddur grunur sé um að varnaraðili hafi framið refsiverð brot eða raskað á annan hátt friði brotaþola. 

Þann 17. apríl 2024 barst lögreglu tilkynning um konu sem beið fyrir utan lögreglustöðina og vildi ræða við lögreglu. Konan var þar ásamt tveimur dætrum sínum og óskaði eftir aðstoð lögreglu við að sækja muni og nauðsynjar á lögheimili þeirra. Kvaðst hún hrædd við að fara heim til sín þar sem hún væri að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum. Konan bar um að hafa upplifað andlegt og líkamlegt ofbeldi ítrekað og endurtekið af hálfu mannsins um margra ára skeið og sýndi lögreglu margar myndir af áverkum á henni.

Maðurinn gerði samkomulag, svokallaða Selfossleið, við lögreglu 3. maí 2024 sem fól efnislega í sér hið sama og nálgunarbann, svo sem heimilt er á grundvelli fyrirmæla ríkissaksóknara. Í yfirlýsingunni sem maðurinn undirritaði kom fram að hann væri reiðubúinn til að koma ekki á eða vera ekki þar sem brotaþoli væri með lögheimili, veita henni eftirför, heimsækja eða vera með öðru móti í sambandi við hana, s.s. með símtölum, tölvupósti eða með öðrum hætti í 6 mánuði. 

Samkvæmt framangreindri ákæru er maðurinn grunaður um að hafa nálgast alla þrjá brotaþola 22. júní 2024, þegar samkomulag hans við lögreglu var í gildi. Enn fremur á því tímabili sem ákæra nær til að hafa beitt fyrrum konu sína viðvarandi, síendurteknu og alvarlegu andlegu ofbeldi og hótunum meðal annars með því að hóta henni lífláti. Þann 29. nóvember 2024 mætti maðurinn á skólalóð eldri dótturinnar og sagðist stúlkan hafa orðið mjög hrædd og hlaupið inn í skólann til að biðja kennara um aðstoð. Maðurinn neitaði að undirrita nýtt samkomulag við lögreglu og var gert að sæta nálgunarbanni með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum 11. desember 2024. Gilti nálgunarbannið til 14. maí 2025.

Í lok júní 2024 úrskurðaði sýslumaðurinn á Suðurnesjum að umgengni mannsins við dætur hans tvær er hafnað á meðan umgengnismál foreldra er til meðferðar hjá sýslumanni.

Með vísan til alls framangreinds féllst Landsréttur á mat lögreglustjórans á Suðurnesjum að ekki sé sennilegt að friðhelgi brotaþola verði verndað með öðrum og vægari hætti en nálgunarbanni,. Var því fallist úrskurð héraðsdóms og maðurinn látinn sæta nálgunarbanni til 25. nóvember 2025.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Nýr formaður Heimdallar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fær tæpar 150 milljónir í bætur eftir hörmulegt vinnuslys

Fær tæpar 150 milljónir í bætur eftir hörmulegt vinnuslys
Fréttir
Í gær

Þetta óttast Pútín mest – Gæti „hangið í ljósastaur“ innan hálfs árs

Þetta óttast Pútín mest – Gæti „hangið í ljósastaur“ innan hálfs árs
Fréttir
Í gær

Skotið fast á Audda Blö vegna troðningsins um helgina – „Bad lúkk að vera að monta sig“

Skotið fast á Audda Blö vegna troðningsins um helgina – „Bad lúkk að vera að monta sig“
Fréttir
Í gær

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“
Fréttir
Í gær

Elliða nóg boðið eftir skrif Snærósar: „Mikið afskaplega er þetta óviðeigandi”

Elliða nóg boðið eftir skrif Snærósar: „Mikið afskaplega er þetta óviðeigandi”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sema Erla birtir skjáskot af hatursorðræðu í hennar garð – „Óvinur samfélagsins“

Sema Erla birtir skjáskot af hatursorðræðu í hennar garð – „Óvinur samfélagsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós þreytt á lyginni um móður sína og segir Bjarna Ben að setja „tappa í tengdasoninn“

Snærós þreytt á lyginni um móður sína og segir Bjarna Ben að setja „tappa í tengdasoninn“