Ísleifur Þórhallsson, formaður Bandalags tónleikahaldara á Íslandi, er vægast sagt harðorður í garð skipuleggjenda stórtónleika FM95BLÖ í viðbyggingu Laugardalshallarinnar á laugardag. Skipuleggjendur tónleikanna var fyrirtækið Nordic Live Event. Um 15 manns þurftu að leita til bráðamóttöku, fólk tróðst undir og myndbönd tónleikagesta vitna um skelfingarástand.
Ísleifur ræddi málið á Bylgjunni í morgun og sagði:
„Ég var ekki þarna sé það sem við höfum öll séð, videó og frásagnir, það þýðir ekki að segja okkur að það hafi ekki gerst sem við sáum með berum augum og við trúum auðvitað gestunum og öllu sem gerðist þarna – svörin í gær voru mjög vond svör – þú getur ekki verið að tala um það að tónleikarnir hafi gengið vel að öðru leyti, ef þetta gerist og stór hluti gestanna er bókstaflega í lífshættu og stór hluti gestanna er bókstaflega „traumatised“ eftir að hafa farið á tónleika, sem á að vera skemmtun, þetta eiga að vera svona bestu minningar lífsins og þær breytast í einhverjar verstu minningar lífsins, þá getur þú ekkert stigið fram og sagt að þetta hafi gengið vel að öðru leyti. Þetta gerðist, þetta var fyrirsjáanlegt miðað við hvernig þú skipulagðir tónleikana og þú klikkaðir. Þú tókst ekki alvarlega að bera ábyrgð á lífi og heilsu tíu þúsund manns í níu klukkutíma. Þegar þú heldur tónleika og gestirnir mæta þá er þetta bara eins og að stíga inn á hótel eða í flugvél. Þú ert búinn að færa allt traust á þinni heilsu og þínu öryggi yfir á tónleikahaldarann. Og það er bara augljóst að þeir tóku þetta ekki alvarlega. Ekki bara að þeir tóku þetta ekki alvarlega, þeir voru bara ekkert að hugsa um þetta, ekki neitt. Og það er bara mjög sorglegt að svona aðilum sé hleypt af stað og þeir haldi það að þú getir bara ákveðið það að vera tónleikahaldari og þú bara tekur þitt hlutverk ekki alvarlega. Þeir eru bara heppnir að enginn hafi dáið.“
Ísleifur segir að ábyrgðin sé öll tónleikahaldaranna, ekki yfirvalda sem veittu þeim leyfi:
„Ég held að þeir hafi örugglega verið með öll tilskilin leyfi og ég vil halda ábyrgðinni á tónleikahöldurunum algjörlega. Ég er tónleikahaldari að segja ábyrgðin er tónleikahaldaranna. Hins vegar hljótum við öll núna að fara í einhverja umræðu um það hverjum er hleypt af stað og á hvaða forsendum. Og hver eru þessi skilyrði og þessi leyfi. Það hljóta að vakna einhverjar spurningar um samskipti við lögregluna fyrir tónleikana og alla sem að þessu koma. Það bara vakna alls konar spurningar. Ég er tónleikahaldari og ég kalla bara eftir mjög ströngum skilyrðum varðandi leyfi til að halda stórtónleika. Og líka bara, það er allt annað að halda tíu þúsund manna tónleika heldur en einhverja tónleika í Hörpu eða Háskólabíói. Það er meira að segja allt annað að halda tíu þúsund manna tónleika heldur en tvö og þrjú þúsund manna tónleika. Það er munur á gömlu höllinni og nýju höllinni. Þegar þú ert kominn í tíu þúsund manna tónleika þá snýst orðið allt þitt starf meira og minna um öryggi og vellíðan gestanna.“
Ísleifur segir að lengd dagskrárinnar hafi ekki verið miðuð að hvernig húsið er byggt. Skipulag hafi verið í molum og það sem gerðist hafi verið fyrirsjáanlegt:
„Það var enginn að biðja þessa tónleikahaldara að vera með níu klukkutíma dagskrá. Þú verður að búa til dagskrá og skipulag út frá því hvernig húsið er byggt. Þú ákvaðst að halda tónleika í þessu húsi og þá átt þú að skilja þetta hús og búa til system út frá húsinu. Það eru takmörk fyrir því hvað þú getur verið með langa dagskrá í íþróttahúsum á Íslandi. Þetta er viðfangsefni tónleikahaldara á Íslandi, það eru engin hús hérna fyrir stórtónleika sem eru byggð fyrir tónleika. Stór partur af okkar starfi er að láta húsin virka fyrir eitthvað sem þau voru ekki byggð fyrir. Og þú getur ekkert bara ákveðið það að vera með níu klukkutíma dagskrá. Loftræstingin er ekki byggð fyrir það og þú veist bara, þú hefur ákveðinn tíma og ákveðinn glugga þar til það fer bara að verða of lítið súrefni í húsinu og of heitt. Og þú þarft að fara í alls konar aðgerðir til að kántera það að húsin eru ekki byggð fyrir þetta. Þeir gerðu ekki neitt!“
Ísleifur segir að allt hafi klikkað og gestir hafi frá byrjun upplifað að skipulagið var ekki gott:
„Það klikkaði held ég allt. Og ég held að allir hafi upplifað það þegar þeir mættu á þessa tónleika, þeir finna strax að hér er ekki gott skipulag. Ég held að það byrji á því þegar fólk labbar inn og það er engin leit og enginn tékkar á skilríkjum. Ég gæti nefnt hundrað atriði. Bara tvö grundvallaratriði. Þú ert með tíu þúsund manns í einu svæði og þú ert með eitt útisvæði. Og þú ert með mjög langa dagskrá. Auddi Blö og strákarnir, það er aðalatriðið og svo er hlé. Þá er fyrirséð að eftir dagskrá í fimm eða sex klukkutíma að á þessu mómenti mun fólk vilja fá sér súrefni, komast á klósettið og fá sér vatn. Þetta er algjörlega fyrirséð. Og þá ertu með alla á einu svæði og þú ert með eitt útisvæði og það er ein leið frá salnum á útisvæðið og það er niður þessar tröppur. Þetta er allt algjörlega fyrirsjáanlegt.
Það verður að skipta salnum upp í fleiri en eitt svæði og svo býrðu til auka útisvæði við hliðina á salnum fyrir svæðin. Þetta eru engin eldflaugavísindi. Þá ertu búinn að stoppa það að allir hafi bara einn valmöguleika og allir þurfi að fara bara eina leið. Númer tvö: Ekki nægileg gæsla. Það var ekki nógu mikið af gæslufólki. Og það þýðir ekkert fyrir þessa aðila að segja við vorum með uppfyllt skilyrði og bla bla bla. Það var augljóslega ekki nægilega mikil gæsla fyrir þessa tónleika. Það er bara greinilegt. Allir segja: Það var hvergi gæsla og við fengum hvergi hjálp.“