fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fréttir

Ákærður fyrir að setja byssukúlu í póstkassa – „Næsta kemur ekki í umslagi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. júní 2025 15:27

Mynd: Grok. Tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðvikudaginn 28. maí var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur mál sem Héraðssaksóknari hefur höfðað gegn manni vegna samtals sjö brota.

Hann er í fyrsta lagi sakaður um hótun með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 22. janúar 2023 sett umslag merkt nafni tiltekins karlmanns í póstkassa sem merktur var honum og fjölskyldu hans og var við heimili þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Í umslaginu var byssukúla, 4,5 cm að lengd, og bréf sem í stóð: „Næsta kemur ekki í umslagi.“ – Segir í ákæru að þessi hótun hafi verið til þess fallin að vekja hjá viðtakandanum ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.

Hótaði að senda föður hennar nektarmynd

Í öðru lagi er maðurinn ákærður fyrir kynferðisbrot gegn konu með því að hafa 15. janúar 2023 hótað henni að senda föður hennar kynferðislega mynd af henni og hafa daginn eftir sent manninum sem hann sendi áðurnefnda byssukúluhótun myndina af henni á Snapchat, án samþykkis konunar.

Í þriðja lagi er maðurinn ákærður fyrir fíkniefnabrot með því að hafa haft í vörslu sinni rúmlega  8 g af kókaíni sem fundust við leit lögreglumanna á heimili hans.

Þrjár árásir á sömu konu

Í fjórða lagi er maðurinn ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn konu á heimili hennar. Er hann sagður hafa ýtt henni á rúm, sest klofvega yfir hana og haldið þannig höndum hennar niðri, slegið hana, rifið í hár hennar og tekið hana kverkataki, með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund um stund og hlaut mar utan á hálsi beggja megin. Meint brot var framið fyrri hluta apríl 2023.

Í fimmta ákærulið er hann sakaður um aðra árás á sömu konu með því að slá hana einu höggi í vinstra gagnaugað með þeim afleiðingum að hún ældi og hlaut mar yfir vinstra auga. Árásin var framin síðari hluta apríl 2023.

Í sjötta ákærulið er hann sakaður um þriðju árás á sömu konu í maí eða júní 2023. Var sú árás framin í bíl á ferð í Reykjavík, er hann sagður hafa slegið konuna nokkrum sinnum í andlitið með hnífskafti þannig að blæddi úr nefi hennar.

Í sjöunda ákærulið er maðurinn ákærður fyrir brot á vopnalögum með því að hafa fimmtudaginn 21. september 2023, er hann var handtekinn á bílastæði, haft í vörslu sinni hnúajárn sem lögreglumenn fundu á honum við handtökuna.

Háar miskabótakröfur

Af hálfu konunar sem sakar manninn um kynferðisbrot er krafist fjögurra milljóna króna í miskabæur.

Fyrir hönd konunnar sem maðurinn er ákærður fyrir þrjár líkamsárásir gegn er krafist fimm milljóna í miskabætur.

Réttarhöld gegn manninum fara fram fyrir luktum dyrum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“
Fréttir
Í gær

Kaffibarinn til sölu – En ekki í sinni hefðbundnu mynd

Kaffibarinn til sölu – En ekki í sinni hefðbundnu mynd