fbpx
Fimmtudagur 08.maí 2025
Fréttir

Ný verslun Ormsson og HTH opnar á Norðurtorgi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. maí 2025 13:57

Ný verslun Ormsson og HTH opnar á Akureyri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný verslun Ormsson og HTH opnar á Norðurtorgi, Akureyri, í dag 8. maí. Hágæða innréttingar frá HTH ásamt fjölbreyttu úrvali raftækja frá fjölda þekktra framleiðenda fá nú að njóta sín í nýju og betra rými.

„Þetta hefur gengið vonum framar. Að sjálfsögðu er mikil vinna að baki og að mörgu að huga þegar kemur að svona stóru verkefni en við erum afar sátt með útkomuna og hlökkum til að frumsýna nýju verslunina,“ er haft eftir Kjartani Sigurðssyni, forstjóra Ormsson.

Verslun Ormsson var áður til húsa við Furuvelli 5 en vegna flutningsins hefur staðið yfir stór rýmingarsala þar sem fjöldi vörumerkja var á veglegum afslætti.

„HTH innréttingar eru nú loks fáanlegar á Norðurlandi og erum við afar spennt að bjóða Norðlendinga velkomna í nýja sýningarsalinn,“ bætir Kjartan við.

Sérstök opnunarhátíð verður haldin á Norðurtorgi dagana 8.–11. maí þar sem fjöldi opnunartilboða verða í gangi, boðið upp á nýbakaðar vöfflur og rjúkandi kaffi fyrir fullorðna fólkið og ís fyrir börnin. Fyrstu 20 viðskiptavinir nýju verslunarinnar fá glæsilegan gjafapoka. Einnig verður í gangi myndlistarsýning með verkum eftir Ella Egils í versluninni.

„Gestir geta svo tekið þátt í leik á staðnum og eiga möguleika á að vinna HTH eldhúsinnréttingu að verðmæti allt að 1,5 milljónir króna, 50“ Samsung Frame sjónvarp, Nutribullet blandara og fleira svo það er óhætt að segja að það verði nóg um að vera í tilefni opnunarinnar,“ segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ormsson og HTH.

„Tölvuleikjaunnendur ættu ekki að láta sig vanta á opnunarhátíðina því við ætlum að auki að vera með spennandi Mario Kart 8 keppni í nýju leikjarými verslunarinnar þar sem sigurvegarinn fær nýjustu Nintendo Switch 2 leikjatölvuna í verðlaun,“ bætir Hjalti við að lokum.

Opið verður frá 10–18 fimmtudag og föstudag en frá 11-16 alla helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjórir menn ákærðir fyrir að frelsissvipta og misþyrma unglingi – Var pyntaður með rafmagnsvopni

Fjórir menn ákærðir fyrir að frelsissvipta og misþyrma unglingi – Var pyntaður með rafmagnsvopni
Fréttir
Í gær

Margrét lengur í gæsluvarðhaldi

Margrét lengur í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Í gær

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“
Fréttir
Í gær

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið