Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að framtíð Grænlands sé björt. Landið eigi ekki að ganga kaupum og sölum.
Þetta sagði Katrín í viðtali við indverska blaðið The Print í tilefni af fundi Arctic Circle India Forum í Noregi í þessum mánuði. Í ljósi spennunnar á norðurslóðum var Katrín meðal annars spurð út í stöðu Grænlands.
„Þrjú lönd sem mynda konungsríkið Danmörku, það er Danmörk, Grænland og Færeyjar. Grænland er land með mikla menningu, íbúa með mjög sérstaka menningu og tungumál. Eins og svo margir hafa sagt, Grænland er hvorki hægt að kaupa né selja,“ sagði Katrín í viðtalinu.
Að baki liggja hótanir Donald Trump Bandaríkjaforseta í garð Grænlands sem hafa ekki farið fram hjá neinum. En hann hefur ekki útilokað að nota hervald til þess að innlima landið inn í Bandaríkin. Hafa þessar hótanir varpað skugga á og sett allt vestrænt varnarsamstarf í háaloft. Einkum í ljósi þess að Bandaríkin og Danmörk eru bæði NATO ríki og hafa verið nánir bandamenn í áratugi.
Málið er Íslendingum ekki óviðkomandi og hafa sumir bent á það að ef Bandaríkin ráðast inn í og hertaka Grænland þá gæti Ísland einnig verið í hættu, það er út af landfræðilegri legu landsins.
„Grænlendingar eru okkar næstu nágrannar á Íslandi. Ég hef farið þangað nokkrum sinnum og hitt marga grænlenska vini,“ sagði Katrín. „Grænland er ekki varningur til að kaupa og selja.“