fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. maí 2025 11:36

Paul Doyle

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paul Doyle, 53 ára fyrrverandi hershöfðingi í breska sjóhernum, hefur verið ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda á sigurgöngu Liverpool FC þann 26. maí 2025. Atvikið átti sér stað á Water Street í miðborg Liverpool, þar sem þúsundir stuðningsmanna höfðu safnast saman til að fagna meistaratitli liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Doyle var einn á ferð og hefur lögregla staðfest að atvikið sé ekki tengt hryðjuverkum.

Í kjölfar atviksins slösuðust 79 manns, þar af fjögur börn. Tuttugu og sjö einstaklingar voru fluttir á sjúkrahús, og tveir þeirra, þar á meðal barn, hlutu alvarlega áverka. Fjórir einstaklingar voru fastir undir bifreiðinni og þurfti að losa þá með aðstoð slökkviliðs. Atvikið átti sér stað um klukkan 18:00 að staðartíma, aðeins tíu mínútum eftir að sigurbíll Liverpool FC hafði farið um svæðið.

Doyle hefur verið ákærður fyrir sjö liðum fyrir líkamsárásir og tilraunir til að valda alvarlegum líkamsmeiðslum með ásetningi.

Hann mætti fyrir dóm í Liverpool Magistrates’ Court í morgun  þar sem hann staðfesti persónuupplýsingar sínar en lagði ekki fram formlega játningu. Doyle, sem var sýnilega niðurbrotinn í dómssal, hefur verið vistaður í gæsluvarðhaldi og er áætlað að hann mæti aftur fyrir dóm síðar  í dag.

Eftir stendur sú ágenga spurning hvers vegna í ósköpunum Paul Doyle framdi slíkan glæp. Hann er sagður vera kirkjurækinn þriggja barna faðir sem starfar í upplýsingatæknigeiranum eftir farsælan feril í breska sjóhernum. Eiginkona hans frétt fyrst af atvikinu í gegnum fjölmiðla en lögregla hefur verið með viðveru við heimili hans síðan.

Vinir og nágrannar eru gjörsamlega agndofa yfir því að hann beri ábyrgð á slíku voðaverki. Doyle hafi hvorki drukkið né neytt vímuefna og hafi verið til fyrirmyndar í samfélaginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enginn vill Werner
Fréttir
Í gær

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni
Fréttir
Í gær

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima
Fréttir
Í gær

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka
Fréttir
Í gær

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum