fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

BBC dæmt til að greiða Gerry Adams miskabætur fyrir meiðyrði – Sagður hafa heimilað morð

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 30. maí 2025 15:30

Gerry við dómstólinn í dag. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska ríkisútvarpið BBC hefur verið dæmt fyrir meiðyrði gagnvart Gerry Adams, fyrrverandi leiðtoga stjórnmálaflokksins Sinn Fein. Í heimildarmynd á vegum stöðvarinnar var Adams sagður hafa heimilað morð á uppljóstrara.

Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu.

Dómstóll í Dublin, höfuðborg Írlands, dæmdi BBC til að greiða Adams 100 þúsund evrur, eða rúmar 14 milljónir króna, í miskabætur. Það er eftir réttarhöld sem stóðu yfir í fjórar vikur.

Málið nær reyndar miklu lengur aftur í tímann. Það er til ársins 2016 þegar því var haldið fram í þættinum BBC Spotlight að Adams hafi árið 2006, sem þáverandi leiðtogi Sinn Fein og þingmaður í Belfast, hafa samþykkt að maður að nafni Denis Donaldson sem veitti bresku leyniþjónustunni MI5 upplýsingar yrði myrtur.

Donaldson, sem var meðlimur í Sinn Fein, fannst skotinn í sumarbústað í apríl þetta ár eftir að hafa viðurkennt að hafa matað lögregluna og MI5 af upplýsingum. Í þættinum kom fram að ónefndur maður sem kallaður var „Martin“ hafi haldið þessu fram um Adams.

Í vörn sinni sögðu lögmenn BBC að þetta hefði ekki verið sett fram sem staðreynd og að fleiri en téður Martin hefðu haldið þessu fram. Lögmenn Adams sögðu hins vegar að fréttamennska BBC væri háskaleg og meiðandi fyrir hann.

Adams var leiðtogi Sinn Fein, pólitíska arms írska lýðveldishersins (IRA), í 35 ár. Þetta er ekki í eina skiptið sem hann hefur verið sakaður um að heimila eða fyrirskipa morð. Árið 2010 var hann til dæmis sakaður um að hafa fyrirskipað morð á ekkju og tíu barna móður árið 1972. Adams hætti sem leiðtogi Sinn Fein árið 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni
Fréttir
Í gær

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“