fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Fréttir

Útvarpsstjóri Sýnar segir aðgerðir Loga ekki nóg – Vill losna við Rás 2

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 21. desember 2025 10:30

Stefán vill losna við Rás 2.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Ernir Valmundarson, útvarpsstjóri Sýnar, vill losna við Rás 2. Hann segir Bylgjuna hafa brugðist hraðar við á válegum tímum, eins og þegar eldgos hafa brotist út.

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, kynnti nýlega aðgerðaráætlun til að styrkja einkarekna fjölmiðla. Meðal annars að þeir fái hlutdeild í auglýsingatekjum RÚV. Einnig að lögfesting þess að RÚV reki tvær útvarpsstöðvar verði afnumin þó að engar áætlanir séu um að leggja niður Rás 2 í bili.

Stefán Eiríksson spilað sóló?

Í grein á Vísi vill Stefán Ernir að þetta skref verði stigið. Hann segir að það sé fagnaðarefni að stigið sé fast til jarðar í þessum efnum. Fáir ráðherrar hafi sýnt það hugrekki sem þurfi til að endurskoða raunverulegt hlutverk ríkismiðla á nútímamarkaði.

„Þótt margt í áætluninni sé af hinu góða, er tilefni til að staldra við afnám kvaða sem snúa að fjölda útvarpsstöðva sem Ríkisútvarpið starfrækir,“ segir Stefán í greininni. „Til þessa hefur stofnunin verið skuldbundin með lögum rekstri tveggja útvarpsstöðva en ráðherra hefur nú lagt til að sú kvöð verði fjarlægð úr lögum. Í aðgerðaráætluninni kemur fram að það verði starfssvið stjórnar RÚV að taka slíkar ákvarðanir um umfang starfseminnar. Í því ljósi skýtur skökku við að Stefán Eiríksson hefur nú þegar stigið fram og sagt að ekki standi til að leggja Rás 2 niður. Var sú yfirlýsing gefin skv. umboði stjórnar?“ spyr hann.

Rekur hann söguna og nefnir að í árdaga hafi hlutverk Rásar 1 verið að sinna hefðbundnu menningarhlutverki en Rás 2 afþreyingu og samtímamenningu.

„Þetta fyrirkomulag var talið nauðsynlegt til að uppfylla almannaþjónustuhlutverk ríkisfjölmiðilsins. Rás 2 gegndi þannig á sínum tíma lykilhlutverki sem menningar- og öryggismiðill til hliðar við Rás 1, en sú tíð er liðin,“ segir hann. „Í dag eru tækifæri ríkisins til hagræðingar veruleg; með því að selja Rás 2 eða leggja hana niður og færa menningarlegt hlutverk hennar yfir á Rás 1, mætti spara almannafé án þess að skerða þjónustu verulega.“

20 mínútum á undan

Segir hann að öryggishlutverkið sé í góðum höndum. Það er að einkareknar stöðvar á borð við Bylgjuna séu fullfærar um að axla þá ábyrgð í samstarfi við stjórnvöld. Nefnir hann eldgosin á Reykjanesi fyrir tveimur árum. Þá hafi Bylgjan veitt almenningi upplýsingar 20 mínútum á undan ríkismiðlunum.

„Samkvæmt fjölmiðlalögum hvílir skylda til að miðla tilkynningum frá almannavörnum á öllum fjölmiðlaveitum, ekki aðeins Ríkisútvarpinu. Lagalegur grundvöllur er til staðar fyrir því að einkaaðilar sinni öryggishlutverkinu,“ segir hann.

Vinsældirnar tali sínu máli

Þá sinni einkareknir miðlar daglegri menningarmiðlun og fréttaflutningi af miklum metnaði. Vinsældirnar tali líka sínu máli. Bylgjan hafi 38 prósenta hlustun en Rás 2 22 prósent í aldurshópnum 18 til 80 ára.

„Það er því rökrétt skref í átt að heilbrigðari fjölmiðlamarkaði að ríkið dragi sig út úr samkeppnisrekstri þar sem einkamarkaðurinn stendur vaktina af öryggi og fagmennsku,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrír Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í S-Afríku

Þrír Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í S-Afríku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“