fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fréttir

Útlendingur staðinn að þjófnaði og umsvifalaust vísað frá landi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. desember 2025 22:40

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendum ríkisborgara var í gær vísað frá landi. Um er að ræða karlmann um fertugt sem var handtekinn í fyrradag vegna þjófnaðar í miðborginni. Maðurinn hafði með sér sérútbúnar töskur sem voru fóðraðar með álpappír til að komast hjá þjófavörnum verslana. Í töskunum mátti finna þýfi. Maðurinn játaði við yfirheyrslu hjá lögreglu, en hann kom til landsins á þriðjudag. Talið er að tilgangur ferðarinnar hafi verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.

Frá þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“