

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er byrjuð að vísa fólki úr röðum við hjólbarðaverkstæði sem ná út á stofnbrautir. Reynt er að halda þeim opnum.
„Miklar örtraðir eru við hjólbarðaverkstæðin í borginni og mjög langar biðraðir eru við þessi verkstæði og það er farið að valda töfum í umferðinni þ.á.m. á stofnbrautum,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Þá er greint frá því að tæki eru að fara á Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg til að fjarlægja vanbúin ökutæki. Þau stöðva stóran part af þeirri umferð sem er á leið til Reykjavíkur og valda því að biðraðir ná enn inn í Garðabæ.
„Einnig er verið að kalla til dráttarbílaþjónustur til að fjarlægja þessi ökutæki af stofnbrautunum,“ segir í tilkynningu.