fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Fréttir

Dó í farþegaflugi skammt frá Íslandi – Nú veit enginn hvar líkið er niðurkomið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 25. júlí 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 13. júlí síðastliðinn átti sér stað alvarlegt atvik í millilandaflugi Turkish Airlines frá Istanbúl til San Francisco. Farþegi um borð fékk einhvers konar aðsvif um borð og varð uppi fótur og fit í vélinni.

Flugvélin var skammt frá Íslandi þegar atvikið átti sér stað og um tíma stóð til að vélin myndi nauðlenda í Keflavík vegna neyðarástandsins samkvæmt flugfréttavefnum Aviation A2Z.

Áður en til þess kom var farþeginn hins vegar úrskurðaður látinn og þá var ákveðið að halda förinni vestur um haf áfram og lenda á Chicago O’Hare-flugvelli sem er einn sá stærsti í Bandaríkjunum.

Lík hins látna var þar flutt frá borði samkvæmt staðfestingu frá Ertugrul Gulsen, stöðvarstjóra Turkish Airlines í Chicago og flutt þaðan í annarri flugvél til San Fransisco.

Í umfjöllun New York Post um málið kemur hins vegar fram að ekkert hafi spurst til líksins síðan og virðist það hreinlega gufað upp. Málið hefði átt að koma inn á borð réttarmeinadeildar Cook-sýslu en þangað barst engin við andlát í áðurnefndu flugi né að lík hafi verið skráð.

Staða málsins er því sú að farþegi lést í háloftunum og enginn veit hvar líkið er niðurkomið.

Andlát í háloftunum eru frekar sjaldgæf en samkvæmt opinberum gögnum koma upp einhverskonar neyðartilvik hjá farþegum í einni af hverjum 600 flugferðum. Í um þremur af 1.000 slíkum tilfellum enda slík neyðartilvik með dauðsfalli.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Týndi drengurinn í Flórída sagður í öruggum höndum þó lögregla leiti hans enn – Flókin forræðisdeila

Týndi drengurinn í Flórída sagður í öruggum höndum þó lögregla leiti hans enn – Flókin forræðisdeila
Fréttir
Í gær

Stórleikarinn í dramatískri opinberri deilu við fyrrum ástkonu

Stórleikarinn í dramatískri opinberri deilu við fyrrum ástkonu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þuríður vill að ökunemar sem taka próf á sjálfskiptan bíl fái líka réttindi á beinskiptan

Þuríður vill að ökunemar sem taka próf á sjálfskiptan bíl fái líka réttindi á beinskiptan
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“