Derhúfur sem björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík auglýsti til sölu vöktu mikla athygli um helgina. Sitt sýndist hverjum um húfurnar, sem voru rauðar með áletruninni „Make Grindavík Great Again“ og 240, póstnúmeri Grindavíkur á hliðinni.
Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar ræddi stóra húfumálið í Bítinu í Bylgjunni. Segir hann það ekki hafa verið meininguna að gera allt vitlaust.
„Þetta var nú bara þannig að við vorum að fara á landsþing og hópurinn hefur verið nokkuð þéttur eftir rýmingu og við höfum alltaf verið með eitthvað þema með okkur og allavega að gera daginn svona bjartari fyrir okkur. Og við vorum að fara á skemmtun í Hvíta húsinu og okkur fannst bara tilvalið og fyndið að mæta með einhverja svona þemahúfu og við spáðum bara ekkert meira í það og mættum,“
segir Bogi um upphaf derhúfanna.
Segir hann að mörgum Grindvíkingum hafi fundist húfurnar flottar og sveitinni fundist að það gæti verið sniðugt að selja grindvíkingum húfu.
„Það var bara hugsunin, við spáðum bara ekkert meira í því. En því miður þá bara hafði það þessar leiðinlegu afleiðingar að umræðan fór algjörlega í vitlausa átt fyrir okkur og aðra.“
Aðspurður segir Bogi húfurnar hafa verið seldar í gegnum Facebook og engin önnur meining á bak við söluna en að gera Grindavík góða aftur. Húfurnar voru teknar úr sölu í gær.
„Okkur fannst bara algjör óþarfi að vera í einhverjum slag með einhverjar húfur sem var ekkert á bak við og vildum bara sýna það að við værum bara ekkert að meina með þessu, skilurðu. Þetta bara svona vatt upp á sig í það að menn vildu fá svona húfu.“
Heimir segir það ekki hafa komið í veg fyrir þá „sem eru mjög duglegir við að móðgast að hlaupa inn á Facebook og skrifa. Og ætla ykkur eitthvað illt væntanlega í þeirra huga.“
Bogi svarar til að það verði að virða skoðanaskiptin, en það hafi aldrei verið nein meining með húfunum. „Hvorki stuðningsyfirlýsing með Trump eða….Það er bara rosalega leiðinlegt að þetta misskildist svona og fór þessa leið.“
Lilja bendir á að þær húfur sem séu til séu væntanlega orðnir safngripir sem bjóða megi upp fyrir fúlgur fjár. Bogi svarar því til að sveitarmeðlimir muni bara setja sínar húfur upp í skáp og eiga.
„Þetta er erfitt líf að finna þennan gullna meðalveg. Við reynum og stundum hrasar maður á leiðinni. Stundum nær maður að ganga bara beint,“ segir Bogi.
„Þeir móðgast sem vilja móðgast og skiptir engu máli hver tímapunkturinn er,“ segir Heimir þegar Lilja spyr hvort tímapunkturinn hafi skipt máli vegna ástandsins í Los Angeles þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent þjóðvarðliða og landgönguliða vegna mótmæla sem standa yfir í borginni.
Talið snýst að stöðunni í Grindavík og starfsemi björgunarsveitarinnar.
„Við erum bara að reyna að halda okkar starfi gangandi án þess að vera í heimabyggð eins og hjá öllum félagasamtökum sem voru í Grindavík. Og er þetta náttúrulega erfitt að að þurfa alltaf að sækja eitthvert annað í þetta og koma alls staðar annars staðar af en við höfum náð að halda okkar kjarna, vil ég meina 90%, starfandi í sveitinni allan vetur.“
Segir hann það aðdáunarvert að þeir sem sjái um unglingastarfið leggi það á sig.
„Heilt yfir Grindavík, Grindavík mun náttúrulega alltaf koma aftur. Það er bara þannig og þetta bara tekur tíma og það er hellings vinna. Og meðan það er verið að vinna þessa vinnu þá verðum við að reyna að halda uppi okkar góða skapi og og jákvæðu viðhorfi og það er gert með húmor og öðru. Lífið á að vera skemmtilegt.“
Aðspurður um hvernig hann sjái næsta ár fyrir sér svarar Bogi:
„Það er bara svolítið erfitt að að spekulera eitthvað í því. Þetta landris þarf að hætta svo að sé hægt að spá fyrir framtíðina almennilega. Við náttúrulega munum gera okkar allra besta í því á meðan að halda öllu við og hafa þetta gott. Þetta er bara á pásu eins og er. Það er alltaf einhver traffík [í Grindavík] og það er byrjað að gista á tjaldsvæðinu og veitingastaðirnir opnir. Alltaf þegar ég hef farið þarna þá er alltaf fullt hús. Bara góður mórall og yfirlæti yfir bænum eins og er. En það er náttúrulega aldrei gaman að keyra tóm hverfi og annað svoleiðis.
Þetta er bara spurning um hvenær. Við ætlum bara að halda okkar bæjarfélagi. En svo bara kemur í ljós hvernig það verður og hvað það tekur langan tíma.“