Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segir Morgunblaðið draga upp mynd sem eigi við engin rök að styðjast. Það er í frétt blaðsins um sætaskiptingu í borgarstjórn.
Fréttin ber fyrirsögnina: „Klofningur hjá sósíalistum“ og fjallar um að fulltrúar flokksins hafi ekki setið saman í sal borgarstjórnar í gær ólíkt því sem venjan sé. Vísað er í deilur innan flokksins og yfirtöku svokallaðs uppreisnararms á aðalfundi fyrir skemmstu. En Sanna Magdalena var í þeim hópi sem missti völdin og hefur hún sagt sig frá innra starfi flokksins síðan.
Í fréttinni er sagt frá því að Andrea Helgadóttir borgarfulltrúi og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi hefðu ekki setið saman og að þetta hefði vakið athygli. En þær tilheyri sitthvorum arminum í valdabaráttunni innan flokksins.
Sanna leggur orð í belg um málið og skýtur á fréttaflutning blaðsins.
„Þessi sætaskipting sem fjallað er um í borgarstjórn á vefsíðunni mbl hefur verið svona í talsverðan tíma og á sér eðlilegar skýringar,“ segir Sanna í færslu á samfélagsmiðlum. „Sem forseta borgarstjórnar var mér úthlutað sæti nálægt svæðinu þar sem forseti og borgarstjóri sitja, það auðveldar mér aðgengi að svæðinu en varaforsetar taka stundum við og þá fer forseti í sitt sæti í stólnum. Þá kemur einnig betur út að mér sé ekki úthlutað sæti í boganum sem er sífellt í upptöku, þar sem ég er oft í forsetastól, þá sit ég ekki oft í salnum í boganum þar sem aðrir borgarfulltrúar sitja og því virkar sætið autt eins og ég sé fjarverandi þegar sú er ekki raunin. Það er ein ástæða þess að mér var úthlutað sæti á jaðri bogans og til að auðvelda tilfærslu mína í forsetastól þegar ég tek við þeim skyldum og upp á hinn partinn sem ég nefndi.“
Sanna segist ekki hafa komist á fund í gær vegna veikinda. Andrea hafi því verið í hennar sæti og Ásta þar sem sæti Andreu er.
„Þetta byggir engan veginn á því sem haldið er hér fram og þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast,“ segir Sanna að lokum.