fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Íslensk fjölskylda í hryllingsíbúð í Torrevieja – Ormar í klósettinu og mygla í ísskápnum – „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 4. júní 2025 11:30

Lifandi kvikindi í íbúðinni. Skjáskot/Reddit

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk fjölskylda lenti í óskemmtilegri reynslu í ferðalagi í Torrevieja á Spáni. Þegar þau mættu í íbúðina reyndist hún vera svo til óíbúðarhæf. Meðal annars lifandi ormar í klósettinu og myglaður og heitur ísskápur.

„Hæhæ ég,mamma og litli bróðir minn vorum að lenda á Spáni og fórum beint í airbnb íbúðina sem við bókuðum…..og hún er ógeðsleg,“ segir íslensk kona í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

Má segja að íbúðin hafi beinlínis verið lifandi og iðandi.

Út hið snarasta

„Það eru lifandi ormar og mygla í klósettinu og vaskinum og ísskápurinn er heitur og myglaður,“ segir konan sem er augljóslega brugðið við þessa óskemmtilegu aðkomu og leiðinlegu byrjun á fríi.

Segir hún að það sé beinlínis ekki hægt að vera í íbúðinni og fjölskyldan verði að komast í burtu hið snarasta.

„Það er engin leið að komast í tengslum við eigandann a íbúðinni heldur bara konu sem sýndi okkur hvar íbúðin er ….við getum ekki verið hérna,“ segir hún örvæntingarfull og spyr ráða. Það er hvort einhver ferðaskrifstofa geti útvegað aðra íbúð eða aðstoðað við að finna íbúð samdægurs. „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt,“ segir hin óheppna íslenska kona.

Kvörtuðu Íslendingarnir til Airbnb en fengu þau svör að eigandinn hefði 72 klukkutíma til að svara. Airbnb myndi ekkert gera fyrir þann tíma en fjölskyldan getur ekki beðið svo lengi. „Við erum aða fara héðan,“ segir sú sem ritaði færsluna.

Harðákveðin að fá endurgreitt

Hafa margir gefið fjölskyldunni ráð um hvernig eigi að bregðast við. Einn bendir á að það gæti þurft að huga að veggjalús og að hún berist ekki með manni út úr hryllingsíbúðinni.

Ráðleggur hann fólkinu að setja engar töskur á rúmin því þannig geti skapast hætta á lús. Einnig að fólkið taki eins margar myndir og myndbönd og þau geta og að það sjáist á myndunum að þær séu teknar inn í þessari íbúð. Þá eigi þau að yfirgefa staðinn, panta hótel fyrir eina nótt, senda kvörtun á Airbnb og athuga hvort að ferðaskrifstofa á Íslandi eða Airbnb geti reddað hraðtilboði. Þetta taki hins vegar allt saman tíma.

Segist fjölskyldan harðákveðin í að fá leiðréttingu á sínum málum. Það er að fá endurgreitt frá Airbnb.

„Þetta er svaka vesen en við munum bara pota og pota þangað til við fáum endurgreitt,“ segir konan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Í gær

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“