fbpx
Sunnudagur 25.maí 2025
Fréttir

Ása Lind um átökin í Sósíalistaflokknum – „Peningar gera fólk oft brjálað“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. maí 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og félagi í Sósíalistaflokknum, segir að lítill hópur fólks sem telur sig hlunnfarinn í flokknum vilji fá óskorað vald til að breyta stefnum flokksins.

Mikill titringur hefur verið innan flokksins að undanförnu en aðalfundur flokksins fer fram á morgun. Eins og fram hefur komið hefur Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar, um skeið legið undir þungri gagnrýni frá hluta flokksmanna. Hefur fjölmiðlamaðurinn verið sakaður um ólýðræðisleg vinnubrögð, ofríki, trúnaðarbrot, andlegt ofbeldi og þöggun svo eitthvað sé nefnt.

Peningar geri fólk brjálað

Í grein sem Ása Lind skrifaði á Vísi í gærkvöldi segir hún sína skoðun á stöðu mála en hún hefur meðal annars starfað í málefnastjórn flokksins.

„Ég vil taka það fram að mér finnst mjög mikilvægt að félagar fái rými til að gagnrýna stjórnir flokksins og taldi ég ýmislegt gott í þeirri gagnrýni. Sem dæmi hafa sumir setið þar helst til lengi og mikilvægt að fá fjölbreyttar raddir að borðinu. Einnig hafa fjármál flokksins, nánar tiltekið Vorstjörnunnar, verið gerð eitthvað vafasöm í þessari gagnrýni. Ég veit ekki betur en að allt bókhald sé opið og búið sé að svara […] þeim röddum,“ segir Ása í grein sinni og bætir svo við:

„En peningar gera fólk oft brjálað. Upptökin af gagnrýninni á stjórnir flokksins komu einmitt frá manni sem réði sig til vinnu fyrir Samstöðina. Gerð var krafa um ákveðið vinnuframlag sem viðkomandi stóð ekki við svo eðlilegt að laun væru ekki greidd eða lægri en samið væri um,“ segir Ása og vísar þar í gagnrýni Karls Héðins Kristjánssonar sem kom fram í mars síðastliðnum.

Sjá einnig: Sýður upp úr hjá Sósíalistum:Segist hafa upplifað útskúfun fyrir að segja sannleikann „um ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot Gunnars Smára“

Gunnar Smári stundum hrokafullur

Ása segir að margt gott hafi komið fram í þessari upphaflegu gagnrýni, sem dæmi tregða til að stofna kjördæmaráð og valdefla landsbyggðina. Hún segist að hluta til skilja tal um andlegt ofbeldi og ofríki Gunnars Smára enda hafi hann verið formaður framkvæmdaráðs frá stofnun.

„Mér finnst alveg kominn tími til að skipta þar út. Mér hefur líka stundum fundist hann hrokafullur og ekki heilsað sem dæmi þegar maður hittir hann á skrifstofunni. En yfirlýsingarnar um andlegt ofbeldi hans finnast mér stórlega ýktar og lykta af svekkelsi manns sem fékk ekki þau laun sem hann gerði ráð fyrir. Fólk verður að vinna sér inn fyrir laununum sínum og viðkomandi skilaði ekki fullnægjandi vinnuframlagi. Leiðinlegt en svona fór það,“ segir hún.

Ása bætir svo við að á vagn þessa hóps hafi svo flykkst alls konar „anarikistar“ – innan flokks sem utan – sem telja sig hlunnfarna af stjórnunum eða ekki fengið nógu mikla athygli eða pláss á listum.

„Alvarlegast á þeim vagni eru samt ranghugmyndir um að stjórnirnar þrjár hafi samið stefnuna og fólk sé nú bara alls ekki sátt við hana. Þarna fer hópur fólks sem vill öfgafyllri Sósíalisma eða hreinlega Kommúnisma en stefna flokksins stendur fyrir. Það sem er alvarlegast við þá ranghugmynd er að þau vilja ná valdi í stjórnum til að geta breytt lögum og komið á ólýðræðislegu ferli til stefnubreytinga eftir eigin hentisemi,“ segir hún.

Farið að tala um næsta formann

Nefnir hún að stefnan hafi ekki verið samin af stjórnum heldur slembivöldum hópum úr almennu félagatali af öllu landinu. Þannig hafi Gunnar Smári ekki samið einn punkt í öllum 18 stefnuflokkum.

„Ég starfaði sjálf í málefnastjórn í 4 ár og fór mesta vinna þar í að hringja í félaga og bjóða þeim að taka þátt í stefnumótunarvinnu. Ég fékk ekkert að segja um stefnuna sjálfa. Margir úr hópnum virðast hins vegar ekki einu sinni búnir að lesa stefnuna en eru samt á móti henni fyrirfram af því að þeir eru svo uppteknir af því að gagnrýna valdið.“

Ása segir að þessi litli gagnrýnishópur segist vilja meira lýðræði en tali um leið á móti lýðræðislegu ferli slembivals. Hann vilji að félagsfundir hafi vald til að breyta stefnum sem almennir flokksfélagar hafa samið saman.

„Þannig að krafan er um lýðræði er studd ólýðræðislegum rökum. Það er gott og mikilvægt að gagnrýna og skylda stjórna að hlusta á hana en ef hún er persónulega rætin og ólýðræðisleg, full af ranghugmyndum um stefnumótun ofl. er ekki skrítið að stjórnir vilji svara fyrir sig og benda á það,“ segir Ása sem endar skrif sín á þessum orðum:

„Sósíalistaflokkurinn er lýðræðislegur flokkur og lög um stefnumótun taka mið af því. Ég tel stórhættulegt ef einstaka málefnafundum af heitum Kommúnistum fái vald til að breyta stefnunni eftir eigin hentisemi. Gagnrýnishópurinn er meira að segja farinn að tala um næsta formann flokksins án þess að það embætti sé til. Það sem er sett í búning lýðræðislegrar gagnrýni er ekkert annað en ólýðræðisleg tilraun til valdayfirtöku. Ég vona að almennir félagsmenn átti sig á þessu og standi á móti lagabreytingum um hið lýðræðislega ferli slembivals. Endilega lesið stefnu flokksins í 18 málaflokkum sem almennir félagar hafa samið saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þurftu að neyða hvalveiðimenn til að afhenda veiðidagbækur

Þurftu að neyða hvalveiðimenn til að afhenda veiðidagbækur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásarmaðurinn á Skyggnisbraut í gæsluvarðhaldi – Árásarþoli með alvarlega áverka en ekki í lífshættu

Árásarmaðurinn á Skyggnisbraut í gæsluvarðhaldi – Árásarþoli með alvarlega áverka en ekki í lífshættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Læknar segja öryggi sjúklinga ógnað fái aðrir að ávísa lyfjum – „LÍ telur þessa fullyrðingu dapurlega og í versta falli hlægilega“

Læknar segja öryggi sjúklinga ógnað fái aðrir að ávísa lyfjum – „LÍ telur þessa fullyrðingu dapurlega og í versta falli hlægilega“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bassi Maraj ákærður fyrir líkamsárás á leigubílstjóra – Hafi vafið posasnúru um háls hans og kýlt í ennið

Bassi Maraj ákærður fyrir líkamsárás á leigubílstjóra – Hafi vafið posasnúru um háls hans og kýlt í ennið