fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

World Class hjónin skála í nýja húsinu – Nágrannar óánægðir með snigilshraða á framkvæmdum

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 27. febrúar 2025 14:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

World Class hjónin, Björn Leifs­son og Haf­dís Jóns­dótt­ir, skála saman á nýjustu myndinni sem þau birta á Instagram. Sjá má að húsið sem þau hafa byggt síðustu ár við Haukanes 22 á Arnarnesi er langt komið, þó það sé ekki tilbúið.

Smartland greinir frá að Laugar ehf., sem hjónin eiga, hafi keypt lóðina 22. janúar 2016. Þann 28. des­em­ber 2020 var fast­eign­inni afsalað til fé­lags­ins Í topp­formi ehf. sem er einnig í eigu hjón­anna. Fé­lagið Í topp­formi ehf. er nú skráð fyr­ir hús­inu. 

Húsið er 660 fm á tveim­ur hæðum. Sjá má á myndinni að húsið er ekki tilbúið, að minnsta kosti ekki að innan, en húsbyggingin hefur staðið frá byrjun árs 2016.

Í september í fyrra skrifaði DV um ánægju íbúa á Arnarnesi með bygginguna, eða réttara sagt byggingarhraðann. Í átta ár hefur byggingakrani staðið uppi og stanslaus umgangur er af verktökum. Garðabær hefur gert athugasemdir við tafir á byggingarhraðanum.

Sjá einnig: Óánægja á Arnarnesi með byggingu World Class hjóna – Byggingarkraninn staðið við húsið árum saman

Í fe­brú­ar 2024 samþykkti bæj­ar­ráð Garðabæj­ar að hjónin mættu byggja vegg á lóðarmörk­um Hauka­ness 24 og Hauka­ness 22. Húsið við Hauka­nes 24 hef­ur einnig orðið að fréttaefni, en það er í eigu Antons Þórarinssonar. Anton auglýsti húsið til 2023. Húsið er enn óselt og Anton býr þar.

Sjá einnig: Anton Þórarinsson selur glæsihús sitt – Hálfklárað á Haukanesi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“
Fréttir
Í gær

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025
Fréttir
Í gær

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags