fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Norður-Kórea er hætt að senda vopn til Rússlands

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. mars 2024 06:30

Kim Jong-un sendir Rússum vopn og skotfæri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í um þrjár vikur hafa Norður-Kóreumenn ekki sent Rússum neinar fallbyssukúlur. Rússnesk skip hafa undanfarna mánuði verið í stöðugum siglingum á milli Vladivostok í Rússlandi og Rajin í Norður-Kóreu með fallbyssukúlur.

Þetta er að minnsta kosti mat vestrænna og suðurkóreskra leyniþjónustustofnana.

Nú segir The Moscow Times að engar sendingar hafi verið síðustu þrjár vikurnar og byggir þetta á upplýsingum frá suðurkóreska greiningarfyrirtækinu NK Pro sem hefur fylgst með skipaumferðinni.

Segir NK Pro að tvö flutningaskip liggi nú við ankeri utan við Vladivostok en hin tvö séu í höfn í Kína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Myndband: Eldur logaði í BMW

Myndband: Eldur logaði í BMW
Fréttir
Í gær

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“
Fréttir
Í gær

Túristi lúbarði meintan þjóf á strönd á Tenerife

Túristi lúbarði meintan þjóf á strönd á Tenerife