fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Vélsleðaslys í nágrenni Húsavíkur

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. mars 2024 16:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að rétt upp úr klukkan 14 í dag hafi björgunarsveitir á Húsavík og Aðaldal verið kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Nykurtjörn við Húsavík, skammt frá skíðasvæðinu á Húsavík.

Þar hafði einstaklingur á vélsleða slasast. Upphaflega hafi verið tilkynnt um að viðkomandi hefði lent í snjóflóði en snjóflóðahætta sé á þessu svæði.

Björgunarfólk á vélsleðum og snjóbílum hafi haldið á staðinn og hlúð að þeim slasaða, búið um hann og komið í sjúkrabörur. Í þeim hafi viðkomandi verið fluttur að björgunarsveitarbíl sem flutti þann slasaða áfram í sjúkrabíl.

Nú rétt fyrir klukkan 16 hafi allir viðbragðsaðilar verið komnir út af hættusvæðinu og á leið heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt