fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Kallaútkall! kallar á kalla að hreyfa sig meira

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 2. mars 2024 17:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins, Mottumars, er hafið. „Skilaboðin í ár eru einföld. Með „Kallaútkalli“ hvetur Krabbameinsfélagið karlmenn til að hreyfa sig, því hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum. Öll hreyfing gerir gagn,“

segir Hlíf Steingrímsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands, í pistli á Vísi.  

„Krabbamein eru gríðarleg áskorun, fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt. Því miður bendir allt til þess að áskorunin stækki stöðugt á næstu árum. Brýnt er að gera allt sem hægt er til að sporna við því. Í dag er staðan þannig að þriðji hver karlmaður getur vænst þess að greinast með krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Því viljum við breyta.“

Hlíf Steingrímsdóttir

Lifendum fjölgar stöðugt

Samkvæmt upplýsingum úr krabbameinsskrá greindust að meðaltali 937 karlmenn með krabbamein á árunum frá 2018 til 2022 og á sama tímabili létust að meðaltali 325 karlmenn á ári úr krabbameinum. Góðu fréttirnar eru að þrátt fyrir að við missum allt of marga úr krabbameinum, fjölgar lifendum stöðugt, þeim sem lifa ýmist læknaðir eða með krabbamein sem langvinnan sjúkdóm vegna framfara í greiningu og meðferð krabbameina. Í lok ársins 2022 voru á lífi 7.907 karlar sem höfðu fengið krabbamein.

Mynd: Unsplash.com

Mest um vert er að geta komið í veg fyrir krabbamein

„Við fögnum framförum í greiningu og meðferð en best er auðvitað ef hægt er að koma í veg fyrir krabbamein. Vísindin vísa okkur leiðina og rannsóknir sýna að 30 til 40% krabbameina tengjast lífsstíl. Það þýðir að ýmsar lífsvenjur, til dæmis tóbaksnotkun, áfengisneysla, hreyfingarleysi, mataræði og fleiri þættir geta haft áhrif á líkurnar á ákveðnum tegundum krabbameina. Þar má nefna krabbamein í ristli, brjóstum, vélinda, lungum og sortuæxli. Sumar tegundir krabbameina hafa þó ekki verið tengdar lífsstíl,“ segir Hlíf.

Við getum hvert og eitt gert ýmislegt til að draga úr hættu á að fá krabbamein

eins og að:

  • Reykja hvorki né nota tóbak
  • Hreyfa okkur reglulega
  • Sleppa eða draga úr áfengisneyslu
  • Huga að heilsusamlegu mataræði
  • Stefna að hæfilegri líkamsþyngd
  • Vernda okkur gegn geislum sólar og nota ekki ljósabekki

„Fleira þarf að koma til ef árangur á að nást og og afar mikilvægt er að stjórnvöld axli sína ábyrgð og miði sínar ákvarðanir og aðgerðir markvisst að því að sem auðveldast sé fyrir fólk að lifa heilsusamlegum lífsstíl. Það snýr til dæmis að skattlagningu á matvæli, aðgengi að fjölbreyttri hreyfingu og aðgengi að vörum sem auka líkur á krabbameinum.“

Af hverju sérstök áhersla á hreyfingu – hreyfa karlar sig ekki nóg?

Hlíf segir að ástæðan til að hvetja karla til hreyfingar sé einföld. 

„Hreyfing er líklega ein aðgengilegasta forvörnin og hún þarf ekki að vera mikil. Rannsóknir sýna að með reglulegri hreyfingu drögum við úr líkum á krabbameini í ristli og endaþarmi en hreyfing á líka óbeinan þátt í að draga úr hættu á fjölda annarra krabbameina, sérstaklega með því að hafa áhrif á líkamsþyngd.

Markmiðið með Kallaútkallinu er að hvetja karlmenn í landinu til að hreyfa sig meira, bæði til að draga úr krabbameinsáhættu og sér til almennrar heilsubótar. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis hreyfir fjórðungur landsmanna sig rösklega í minna en klukkustund á viku. Þar er auðvelt að bæta úr, það þarf ekki svo mikið til.“

Hlíf segir að heilsusamlegur lífsstíll sé  því miður ekki trygging gegn krabbameinum. „Ef fólk veikist er hins vegar kostur að hafa hreyft sig reglulega og halda því áfram í og eftir meðferð enda sýna rannsóknir að þeim vegnar almennt betur en þeim sem hreyfa sig lítið eða ekkert.“

Mynd: Unsplash.com

Fyrir hverju er verið að safna?

Spár benda til að krabbameinstilvikum fjölgi um rúm 50% fram til ársins 2040 og samhliða fjölgi lifendum um allt að 10.000. 

„Fyrir vikið er starf Krabbameinsfélagsins mikilvægara en nokkru sinni. Félagið lætur sig allt varða tengt krabbameinum og beitir sér í forvörnum, hagsmunagæslu, fræðslu, krabbameinsrannsóknum og ráðgjöf og stuðningi við sjúklinga. Allt starf félagsins er rekið fyrir sjálfsaflafé. Þar spilar Mottumars stórt hlutverk. Við þökkum þér fyrirfram fyrir stuðninginn! Saman náum við enn betri árangri í baráttunni.

Með kaupum á gullfallegum Mottumarssokkum úr smiðju As We Grow, skeggsöfnun, þátttöku í viðburðum og með því að hreyfa þig leggur þú þitt af mörkum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn
Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Í gær

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna
Fréttir
Í gær

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn