fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Fréttir

Bubbi fengið nóg af stöðunni hér á landi: „Það mun einn daginn sjóða uppúr“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. ágúst 2024 08:55

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að háir stýrivextir séu aðför gegn almenningi en gjöf til þeirra sem græða á þeim. Þetta kemur fram í býsna harðorðum pistli Bubba sem birtist á vef Vísis í morgun. Í pistlinum dregur Bubbi ekkert undan.

Stýrivextir – þetta orð, ómæómæ! Þeir reka fólk í röðum ofaní ginið á bönkum landsins, stýra því snyrtilega hverjir græða. Herra minn drottinn, ekki guð á himnum, en jú, peningaguðinn er eins og fimmfaldur Búdda, kjagandi um með uppglennt augu af græðgi. Hann fær aldrei nóg.“

Í pistlinum segir Bubbi að krónan sé vopn þeirra sem vilja viðhalda gjánni á milli þeirra sem lifa vel og feitt og þeirra sem lifa naumt – þeirra sem eru bundin á klafa krónunnar og moka framtíð barna sinna ofan í gin bankanna eins og hann orðar það.

„Þeir ríku kaupa upp íbúðir á markaði og yfirbjóða allt og alla með sín fasteignafélög, ryksuga enga drullu bara gull. Unga fólkið á ekki sjens að kaupa sér heimili, auðurinn safnast á fárra hendur. Það rignir alla daga óréttlæti og meginþorri þjóðarinnar er rennblautur.“

Bubbi spyr hvernig svona lagað geti gerst og svarar hann því til að þetta sé óhæfri stjórnmálastétt að kenna þó vissulega sé þar að finna fólk sem vill vel en ræður engu. Þessu sé þó hægt að breyta með einni leið sem er í höndum fólks í næstu kosningum.

„Það er ömurð að ungt fólk geti ekki komið sér upp þaki yfir höfuðið. Leiguverð er svo hátt að Fagin í bók Dickens um Óliver Twist hefði fengið hjartaslag af gleði yfir þessari nýju stétt fermetrakúreka sem arka um með leigusamninga í byssuhólka stað,“ segir Bubbi sem endar skrif sín á þessum orðum:

„Það mun einn daginn sjóða uppúr og þegar það gerist þá dugar ekki að læsa samviskuna inni, hún verður einfaldlega rifin úr brjóstum manna þar sem hún hímir bakvið hvíta rimla þeirra sem kynda bálið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum