Neytendastofa hefur sektað snyrtistofurnar Blanco, Blondie Garðabæ, Hárskera Almúgans og Sprey fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.
Ýmist vantaði verðmerkingar á vörum sem eru til sölu á stofunum eða það vantaði verðskrá, en hvort tveggja á að vera til staðar, samkvæmt neytendalögum.
Í úrskurðunum segir að viðkomandi stofur hafi ekki orðið við tilmælum Neytendastofu um að bæta úr og verðmerkja vörur sínar með löglegum hætti. Voru allar stofurnar fjórar sektaðar um 50 þúsund krónur hver.
Þetta var niðurstaðan af nokkuð víðtækri skoðun stofnunarinnar á snyrtistofum í vor. Farið var í 27 snyrti- og hársnyrtistofur og kannað hvort söluvörur væru verðmerktar og verðlisti sýnilegur fyrir framboðna þjónustu. Í fyrri skoðun voru gerðar athugasemdir við verðmerkingar hjá 15 fyrirtækjum. Þær stofur sem ekki urðu við tilmælum eftir fyrri skoðun voru síðan sektaðar.