fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. apríl 2024 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útlit er fyrir ákveðnar breytingar í veðrinu hér á landi um miðja viku þegar það þykknar upp og fer að rigna suðvestanlands. Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa síðustu daga sem hafa einkennst af sól og tveggja stafa hitatölum. Það verður svipað uppi á teningnum í dag og á morgun en á miðvikudag má gera ráð fyrir dálítilli rigningu sunnan- og vestanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag, mánudag, verði vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum má gera ráð fyrir strekkingi en hægari vindi annars staðar. Á Norður- og Austurlandi má gera ráð fyrir lítilsháttar skúrum eða éljum en suðvestanlands verður bjart með köflum. Hiti verður 2-12 stig, mildast syðra.

„Á morgun, þriðjudag er útlit fyrir norðan golu eða kalda, en um kvöldið verður líklega hægviðri víðast hvar. Bjart veður sunnan heiða, en skýjað og úrkomulítið norðantil. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag er svo útlit fyrir að vindur snúist til suðlægra átta með vætu um landið sunnan- og vestanvert, en ekki er að sjá að hlýni neitt í bili nema að hitinn mun hækka dálítið á Norður- og Austurlandi.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skýjað, hvassast vestast. Dálítil rigning sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 2 til 8 stig.

Á fimmtudag:
Suðaustlæg átt 3-8. Lítilsháttar rigning eða súld sunnan- og vestantil, en annars bjart að mestu. Hiti 4 til 10 stig að deginum.

Á föstudag:
Austlæg átt 5-13 og rigning eða súld. Þurrt norðaustantil en rigning eða snjókoma undir kvöld. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag:
Breytileg átt og rigning eða súld með köflum. Hiti 6 til 11 stig.

Á sunnudag:
Útlit fyrir suðvestanátt, skýjað með köflum og sums staðar dálitla vætu. Áfram milt í veðri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Í gær

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“
Fréttir
Í gær

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“
Fréttir
Í gær

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar