fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Náði myndbandi af leigubílstjóra kasta af sér þvagi á bensínstöðvarplani

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. mars 2024 07:28

Skjáskot úr myndbandinu sem birtist í gærkvöldi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband af leigubílstjóra í miðborg Reykjavíkur hefur vakið talsverða athygli í hópnum Íslensk bílamyndbönd á Facebook en á myndbandi má sjá bílstjórann kasta af sér þvagi á bílaplani ÓB við Sæbraut.

Það þarf vart að taka fram að það er brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar að kasta af sér þvagi á almannafæri og liggur við því sekt.

„Er það bara ég… Eða er ekki frekar fáránlegt að stoppa bara á bensínstöðvar plani opna hurðina og míga á götuna og hoppa svo aftur í leigubílinn að ná í næsta farþega,“ spurði sá sem birti myndbandið.

Fjörugar umræður hafa farið fram í hópnum eftir að myndbandið birtist þar í gærkvöldi og eru sumir hneykslaðir á framferði bílstjórans. „Djöfull geta menn verið ógeðslegir! Ekki vildi ég versla við svona sóða,“ segir einn á meðan annar segir: „Viðbjóður.“

Aðrir eru skilningsríkari og spyr einn hvort maðurinn eigi að pissa á sig. Enn aðrir sjá spaugilegar hliðar málsins og segir einn í umræðunum: „Helvítis þétting byggðar, það er hvergi friður til að míga lengur.“

Ekki liggur fyrir á þessari stundu fyrir hvaða fyrirtæki maðurinn ók en margir hvetja málshefjanda til að senda myndbandið þangað eða til Samgöngustofu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“
Fréttir
Í gær

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“
Fréttir
Í gær

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi
Fréttir
Í gær

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026
Fréttir
Í gær

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið