fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Íbúar á Seltjarnarnesi varaðir við: „VARÚÐ VARÚÐ VARÚГ

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. janúar 2024 07:55

Mynd: Fréttablaðið/Gunnar V. Andrésson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Seltjarnarnesbær sá ástæðu til að birta tilkynningu í Facebook-hópi íbúa vegna gríðarmikillar hálku á götum bæjarins. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki farið varhluta af hálkunni en hlýindi hafa verið síðan á nýársdag og hafa mjög hálar klakabrynjur myndast víða.

Í tilkynningunni, sem íbúar um allt höfuðborgarsvæðið, geta tekið til sín segir meðal annars:

„VARÚÐ VARÚÐ VARÚÐ! Hvetjum bæjarbúa til að fara sérstaklega varlega á ferðum sínum um bæinn en það er gríðarleg hálka víðast hvar, hvort sem er á göngustígum, í botnlöngum eða einstökum götum.“

Bent er á það að starfsmenn þjónustumiðstöðvar hafi verið að skafa, sanda og salta í allan gærdag en það dugi skammt.

„Minnum enn fremur á að öllum er frjálst að sækja salt í gulu kisturnar sem eru víða um Nesið auk þess sem nálgast má sand við Þjónustumiðstöðina, Austurströnd 1. Gætið ykkar í hálkunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Í gær

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box
Fréttir
Í gær

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar