fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Á hælunum á „afar hættulegum“ morðingja sem myrti ungan tæknifrumkvöðul

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. september 2023 18:27

Pava LaPere var ungur tæknifrumkvöðull sem átti glæsta framtíð fyrir sér

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Baltimore-borg í Bandaríkjunum leitar nú hættulegs manns, Jason Dean Billingsley, sem grunaður er um að hafa myrt tæknifrumkvöðulinn Pövu LaPere síðastliðinn mánudag. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og stendur umfangsmikil leit lögreglu yfir að hinum meinta morðingja.

LaPere var aðeins 26 ára gömul en hún var annar af stofnendum tæknifyrirtækisins EcoMap Technologies og starfaði sem forstjóri þess. Fyrirtækið stofnaði hún í háskóla ásamt viðskiptafélaga sínum en það er hluti af gervigreindarbyltingunni sem nú stendur yfir. Smíðar fyrirtækið ýmis tól, til að mynda sjallmenni fyrir vefsíður fyrirtækja, sem að nota gervigreind til að finna til upplýsingar.

Jason Dean Billingsley

LaPere var farin að vekja mikla athygli í tæknigeiranum og var meðal annars nýlega á lista Forbes yfir unga frumkvöðla sem vert væri að fylgjast með í framtíðinni.

Á mánudag var tilkynnt um að LaPere væri saknað en nokkrum klukkustundum síðar var lögreglan var kölluð til vegna alvarlegrar líkamsárásar í íbúð í miðborg Baltimore. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang lá LaPere í blóði sínu með  með alvarlega höfuðáverka sem drógu hana til dauða. Ekki er talið að LaPere og sá sem grunaður er um árásina hafi þekkst.

Billingsley, sem er 32 ára gamall, er með fjölmarga dóma á bakinu, aðallega fyrir líkamsárásir, en þyngsta dóminn fékk hann árið 2015 fyrir nauðgun, þrjátíu ára dóm. Hann hafði aðeins afplánað lítinn hluta þess dóms en var þó sleppt úr haldi í fyrra. Hefur lögreglan í Baltimore greint frá því að hann sé talinn „afar hættulegur“ og hefur fjölmennt lið lögreglu verið kallað út til að hafa hendur í hári hans.

“Þessi einstaklingur mun drepa og hann mun nauðga,” sagði Richard Worley, lögreglustjóri Baltimoreborgar, á blaðamannafundi vegna málsins í dag. „Hann mun gera allt til að valda skaða,“ sagði lögreglustjórinn ennfremur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt