fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Finnbjörn varar við og segir þetta ekki mega gerast – „Hagsmuna hverra er þetta fólk að gæta?“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 15. desember 2023 10:00

Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er beinlínis galið að gera aðhaldskröfu gagnvart þessari mikilvægu stofnun, almennt og sérstaklega við ríkjandi aðstæður,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í gærkvöldi.

Finnbjörn bendir á að Samkeppniseftirlitið hafi skilið af sér á dögunum viðbótarumsögn um fjárlagafrumvarp næsta árs sem nú er í lokavinnslu á Alþingi.

„Þar kemur fram að „grafalvarleg staða” ríki í samkeppnismálum hér á landi sökum þeirrar sveltistefnu sem íslenskir ráðamenn hafa beitt á liðnum árum. Fram kemur m.a. að fjárframlög til eftirlitsins munu lækka um 20% frá árinu 2014 til 2024 á föstu verðlagi á sama tíma og verkefnum eftirlitsins hefur fjölgað og efnahagsumsvif aukist um og yfir 35-40%,“ segir Finnbjörn sem er, skiljanlega kannski, allt annað en sáttur við þróun mála og segir að erlend fordæmi hafi verið hundsuð.

Með miklum ólíkindum

„Þetta er með miklum ólíkindum og verður enn furðulegra þegar haft er í huga að víða hafa stjórnvöld brugðist við miklum verðhækkunum og verðbólgu með auknu samkeppniseftirliti. Má nefna Svíþjóð, Bretland og Bandaríkin sem nýleg dæmi. Erlendis þykir nauðsynlegt og sjálfsagt að grípa til slíkra aðgerða þegar efnahagshamfarir ríða yfir líkt og gerst hefur á Vesturlöndum síðustu misserin. Virk samkeppni er talin nauðsynleg sem liður í efnahagslegum viðbrögðum við verðbólgu og miklum verðlagshækkunum.“

Finnbjörn segir að tilgangurinn með bættu og öflugra eftirliti sé vitaskuld að halda uppi vörnum fyrir hagsmuni almennings. Stjórnvöldum hér á landi þyki hins vegar með öllu ástæðulaust að bregðast við með sama hætti og sjálfsagt þykir víðast um hinn vestræna heim. Þannig segir Finnbjörn að í umsögn Fjármálaeftirlitsins komi fram að stofnunin hafi ítrekað bent á að við núverandi aðstæður fái það tæpast sinnt lögbundnum skyldum sínum.

Mjög mikilvægt fyrir launafólk

„Samkeppni er launafólki á Íslandi mjög mikilvæg enda stuðlar hún ekki einungis að lægra verðlagi heldur styður hún við framleiðni, hagvöxt og hærra atvinnustig svo eitthvað sé nefnt. Fyrir liggur að samkeppni á mikilvægum mörkuðum á Íslandi er ábótavant. Á þetta hefur ítrekað verið bent með rannsóknum. Þá blasir við að samkeppniseftirlit er sérlega mikilvægt í litlu hagkerfi á borð við Ísland þar sem fákeppni ríkir á flestum mörkuðum og aðgangshindranir eru miklar.“

Finnbjörn er þeirrar skoðunar að það sé galið að gera aðhaldskröfu gagnvart þessari mikilvægu stofnun.

„Almenningur hlýtur að spyrja; hvers vegna er íslenskum stjórnmálamönnum svo illa við samkeppniseftirlit? Hvers vegna mega Íslendingar ekki njóta þess ábata sem fylgir starfsemi Samkeppniseftirlitsins? Hagsmuna hverra er þetta fólk að gæta? Að veikja Samkeppniseftirlitið eru vond skilaboð inn í kjarasamninga og misráðin aðgerð af hálfu stjórnvalda sem ættu með réttu að efla það og stuðla þannig að lægra verðlagi og auknum kaupmætti almennings í landinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“