fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Fékk að finna fyrir því eftir að hann byrjaði með fyrrverandi kærustu besta vinar síns

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. október 2023 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás við strætóskýli fyrir framan verslunarmiðstöðina Fjörðinn í ágúst 2020.

Maðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi vin sinn með því að slá hann ítrekað, meðal annars í höfuð, með hnúajárni eða öðru slíku höggvopni. Afleiðingarnar urðu þær að fórnarlambið hlaut skurð og sár á vinstra eyra.

Kærastan var á vettvangi

Að því er fram kemur í dómi héraðsdóms var kærasta fórnarlambsins á vettvangi árásarinnar. Tjáði hún lögreglumönnum sem mættu á vettvang að hún hefði áður verið kærasta árásarmannsins. Brotaþoli og árásarmaðurinn hefðu áður verið bestu vinir þar til hún og brotaþoli byrjuðu saman, en þá hafi árásarmaðurinn byrjað að hóta honum líkamsmeiðingum og lífláti.

Árásarmaðurinn gaf skýrslu hjá lögreglu nokkrum vikum eftir árásina og þar viðurkenndi hann að hafa slegið brotaþola ítrekað með hnefanum. Kvaðst hann ekki muna hvort hann hafi verið með hnúajárn.

Hann viðurkenndi að hann hefði verið í mjög mikilli neyslu á þessum tíma og reiður gagnvart brotaþola sem hafi byrjað með fyrrverandi kærustu hans. Þeir hefðu verið mjög góðir vinir til margra ára en hann hafi misst stjórn á skapi sínu þegar hann rakst á brotaþola.

Baðst afsökunar og urðu aftur vinir

Fram kemur að árásarmaðurinn hafi hringt í fórnarlambið, fyrrverandi vin sinn, nokkrum mánuðum eftir árásina til að biðjast afsökunar. Brotaþoli hafi tekið því vel og þeir endurvakið góð tengsl upp frá því. Þá kvaðst hann vera í námi við framhaldsskóla til að ljúka stúdentsprófi og hafa slitið öll tengsl við fyrri neyslufélaga.

Fórnarlamb árásarinnar sagðist hafa jafnað sig vel eftir atvikið, honum líði vel enda hafi hann og ákærði náð saman aftur sem bestu vinir.

Tilefnislaus og alvarleg árás

Deilt var um það hvort hnúajárni eða öðru höggvopni hafi verið beitt í árásinni. Ákærði neitaði því en á upptökum og ljósmyndum megi að mati dómsins greinilega sjá að maðurinn var með hlut á fingrum vinstri handar sem líkist helst hnúajárni eða öðru slíku höggvopni.

Í niðurstöðu dómsins kemur fram að árásarmaðurinn hafi fengið tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir líkamsárás sumarið 2017. Að öðru leyti skipti sakaferill hans ekki máli við refsiákvörðun.

„Til refsiþyngingar horfir að háttsemi ákærða var tilefnislaus og alvarleg þar sem hættulegu áhaldi var beitt ítrekað á höfuð brotaþola. Hins vegar voru afleiðingar háttseminnar ekki alvarlegar,“ segir í niðurstöðu dómara.

Hæfileg refsing var ákveðin átta mánaða fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn í þrjú ár. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 100 þúsund krónur í miskabætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“