Kjarnorkuvopnaskak Rússa er í þekktum gír þessa dagana. Pútín talar um ný kjarnorkuvopn og þingið ræðir hvort Rússland eigi að segja sig frá samningi um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Og þess utan hljóðar orðræðan upp á að allt sé þetta Vesturlöndum að kenna.
Flemming Splidsboel, sem er sérfræðingur í rússneskum málefnum, sagði í samtali við Ekstra Bladet að þetta væri sama gamla lagið sem hljómi í Rússlandi en að það sé ekki tilefni til að hafa miklar áhyggjur. Ein ástæða liggur aðallega að baki því mati hans.
„Það væri óvinsælt innanlands og þar með óráðlegt fyrir Pútín að láta gera tilraunasprengingar án þess að það sé þörf á því. Það væri umdeilt og sjokkerandi fyrir Rússa. Þeir eiga nú þegar fullkominn kjarnorkuvopn sem þeir þekkja vel,“ sagði hann.
Pútín staðfesti í síðustu viku að Rússar hefðu gert tilraunir með nýtt kjarnorkuknúið flugskeyti, Burevestnik, sem hafi gengið vel. Að hans sögn var þetta stór áfangi.
Á föstudaginn sagði forseti þingsins að Rússar muni hugsanlega segja sig frá samningi SÞ um bann við tilraunasprengingum kjarnorkuvopna.
Splidsboel sagði að ef þeir gera það, opni það á möguleikann fyrir þá að gera tilraunasprengingar og sé þetta liður í tilraunum Rússa til að þrýsta á Vesturlönd. Hins vegar sé engin ástæða til að trúa að þeir muni gera þetta. Bara það að þeir segi sig frá samningnum þýði ekki sjálfkrafa að þeir muni gera tilraunasprengingar.