fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fréttir

1881 safnaði einni milljón til styrktar Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 8. september 2023 10:45

Jón Gunnar Geirdal, Hálfdán Steinþórsson, Sólrún Klara Þórisdóttir, Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir með bolinn góða.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

1881 Góðgerðarfélag safnaði einni milljón króna til styrktar Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 í átaki sem félagið stóð fyrir í ágúst, eins og segir í tilkynningu frá 1881.

Félagið stóð fyrir sölu stuttermabola í tilefni Hinsegin dagana 8.-13. ágúst í samstarfi við Vero Moda og Jack & Jones. Verkefnið naut liðsinnis Rakelar Tómasdóttur, hönnuðar en hún hannaði einstakt merki bolsins.

„Samasem merkið þýðir að þó svo við séum öll ólík þá erum við öll jöfn. Engin manneskja er merkilegri en önnur, sama hvernig fólk skilgreinir sig eða skilgreinir sig ekki á litrófi regnbogans. Litirnir í merkinu blandast saman sem táknar að það eru endalausir möguleikar og endalausar leiðir til að vera hinsegin. Það er pláss fyrir okkur öll., segir Rakel.

Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 sem er fyrir öll ungmenni á aldrinum 13-16 ára sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt.

 „Markmið starfseminnar er að vinna markvisst að því að bæta lýðheilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn fordómum, mismunun og einelti sem beinist gegn hinsegin börnum í skóla og frístundastarfi.“

 „Þökk sé söfnuninni mun Hinsegin félagsmiðstöðin geta haldið 10-12 ára starfinu áfram en hætta þurfti starfseminni vegna skorts á fjármagni. Það er gríðarlega mikilvægt að halda utan um þennan aldurshóp og erum við því ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn og hlökkum til að veita 10-12 ára börnum það örugga og skemmtilega rými sem þau eiga skilið,“ segir Sólrún Klara Þórisdóttir, forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar.

 „Söfnunin gekk vonum framar og við erum í skýjunum með afraksturinn. Mörg hundruð manns lögðu verkefninu lið og erum við mjög stolt að geta styrkt jafn mikilvægt starf og Hinsegin félagsmiðstöð ‘78,“  segir Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann, framkvæmdastjóri 1881 Góðgerðafélags.

Hægt er að fylgjast með næstu verkefnum 1881 á heimasíðu félagsins 1881.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íslensk fjölskylda í hryllingsíbúð í Torrevieja – Ormar í klósettinu og mygla í ísskápnum – „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt“

Íslensk fjölskylda í hryllingsíbúð í Torrevieja – Ormar í klósettinu og mygla í ísskápnum – „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Svarar Dóru Björt fullum hálsi um málefni Grafarvogs – „Þetta er allt að því móðgun“

Svarar Dóru Björt fullum hálsi um málefni Grafarvogs – „Þetta er allt að því móðgun“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Íslenskur iðnaðarmaður stóð ekki við sitt – Fór undan í flæmingi en viðurkenndi loks hvað bjó að baki

Íslenskur iðnaðarmaður stóð ekki við sitt – Fór undan í flæmingi en viðurkenndi loks hvað bjó að baki
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Smyglaður sími afhjúpar ógnarstjórn Kim Jong Un

Smyglaður sími afhjúpar ógnarstjórn Kim Jong Un
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Nýr formaður Heimdallar
Fréttir
Í gær

Leggur til tvöfalt kerfi – „Engin glóra í því að biðlistar styttist bara með því að fólk deyi á þeim“

Leggur til tvöfalt kerfi – „Engin glóra í því að biðlistar styttist bara með því að fólk deyi á þeim“
Fréttir
Í gær

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“