Fyrr í dag fór áhöfnin á björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein í æfingasiglingu frá Sandgerði. Það óhapp átti sér stað um klukkan 13:00 að kælivatnsrör fyrir aðra aðalvél skipsins sprakk með þeim afleiðingum að vélarrúmið fylltist af gufu, sem í kjölfarið virkjaði brunakerfi skipsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg, en þar segir að áhöfnin hafi brugðist við aðstæðum samkvæmt fyrirfram ákveðnu verklagi. Drepið var á báðum vélum og öllum rýmum lokað. Þegar ljóst varð að enginn eldur var um borð var vélarrúmið reykræst og kom þá skýringin – sprungið kælivatnsrör – í ljós. Ekki var því hægt að nota þá vél, en hin vélin var gangsett og siglt fyrir því vélarafli til hafnar í Sandgerði.
Til öryggis var björgunarskipið Oddur V. Gíslason kallað út frá Grindavík en ekki reyndist svo þörf á aðstoð þess.
Í tilkynningu segir ennfremur:
„Hannes Þ. Hafstein hét fyrir stuttu Sigurvin, og var staðsettur á Siglufirði, en þegar nýtt björgunarskip, það annað af þremur sem samið hefur verið um smíði á, var afhent, fékk björgunarsveitin í Sandgerði þetta skip til notkunar. Það björgunarskip sem var í Sandgerði hafði verið selt, og var ekkert björgunarskip í Sandgerði um hríð.
Unnið hefur verið að því að standsetja skipið og gera það klárt fyrir strandveiðitímabilið sem hefst á morgun, 1. maí.
Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikil og kostnaðarsöm viðgerðin á Hannesi verður, en þó ljóst að ekkert björgunarskip verður til taks í Sandgerði á næstunni, og viðbragð því skert á Suðurnesjum.
Hannes Þ. Hafstein var smíðaður árið 1988 og því kominn nokkuð til ára sinna, líkt og flest önnur björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar utan þeirra tveggja nýju skipa sem tekin hafa verið í notkun.
Stóru átaki við að endurnýja öll 13 skip félagsins, um allt land, hefur verið hrint af stað. Samið hefur verið um smíði þriggja skipa, og búið er að afhenda tvö, en það þriðja verður afhent í haust.
Þetta atvik sýnir svo ekki verður um villst, þá brýnu nauðsyn að endurnýja björgunarskipaflotann, jafnvel hraðar en áætlað hafði verið. Talsvert vantar enn upp á að Slysavarnafélagið Landsbjörg hafi fullfjármagnað endurnýjun allra skipanna, en um tvo milljarða vantar upp á að klára verkefnið.
Nánari upplýsingar um endurnýjunarverkefnið má finna hér.