fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Segir að Pútín hafi undirritað eiginn dauðadóm

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 1. júní 2022 05:35

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kjölfar viðtals við CNN var Vladimir Kara-Murza, sem er andstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, handtekinn og stungið í fangelsi. Nú beinir Jevgenija Kara-Murza, eiginkona Vladimir Kara-Murza, orðum sínum að Pútín.

Það leikur enginn vafi á að stríðið í Úkraínu hefur reynst Rússum, og Pútín, dýrt. Það átti að vera skammvinnt og Rússar virðast hafa reiknað með að Úkraínumenn tækju þeim fagnandi sem frelsurum. En raunin er allt önnur og þeir hafa mætt harðri mótstöðu.

Mannfall rússneska hersins er mjög mikið og nú er svo komið að hluti hersins hefur snúið baki við Pútín. Breskar leyniþjónustustofnanir segja að fregnir hafi borist af uppreisn innan hersins og margir hermenn hafa neitað að fara til Úkraínu að berjast, þar á meðal liðsmenn Rosgvardia sem er einkaher Pútíns.

115 hermenn reknir úr einkaher Pútíns – Neituðu að berjast í Úkraínu

Rússneska elítan er sögð reið yfir stríðinu og þá aðallega hinum alvarlegu efnahagslegu afleiðingum þess en þær eru afleiðing refsiaðgerða sem Vesturlönd beita Rússa. Er elítan sögð svo reið að í afkimum Kremlar sé verið að ræða hvernig megi koma Pútín frá völdum.

Jevgenija segir að stríðið geti orðið Pútín að aldurtila en hún er þekktur gagnrýnandi Pútíns. Með því að ráðast inn í Úkraínu sendi Pútín Rússland í frjálst fall og þetta mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir Pútín segir hún.

„Ég tel að Pútín hafi undirritað eiginn dauðadóm,“ sagði hún í samtali við The Guardian.

Hún lætur Vesturlönd einnig heyra það: „Pútín mun falla og þeim mun fyrr, þeim mun hraðar getum við bundið enda á þetta tvöfalda siðferði sem ræður ríkjum. Á sama tíma og ríki styðja Úkraínumenn með að senda þeim vopn og mannúðaraðstoð og beita efnahagsaðgerðum gegn rússnesku efnahagslífi þá láta þau Pútín fá milljarða fyrir olíu og gas en það gerir honum kleift að halda þessu stríði áfram. Þetta verður að stoppa, því í hreinskilni sagt er þetta óskiljanlegt.“

Eiginmaður hennar, Vladimir, er þekktur andstæðingur Pútíns og tvisvar á síðustu þremur árum hefur verið reynt að ráða hann af dögum með eitri.

Hann var handtekinn 11. apríl og ákærður fyrir að dreifa röngum upplýsingum um hina „sérstöku hernaðaraðgerð“ (eins og Rússar kalla stríðið í Úkraínu).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“