fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Hlutafjárútboð Nova| Gefa starfsfólki hlutabréf fyrir vel unnin störf – „Viljum einfaldlega segja TAKK“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. júní 2022 17:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlutafjárútboð fjarskiptafyrirtækisins Nova hefst á föstudaginn 3. júní. Nú hefur Nova tilkynnt að í tilefni af útboðinu ætli bandaríska fjárfestingarfélagið Pt Capital að gefa starfsmönnum Nova hlutabréf sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf, en félagið er stærsti hluthafi Nova í dag. Í tilkynningu frá Nova er þessi gjöf kölluð „TAKKlæti“ og er henni lýst með eftirfarandi hætti:

TAKKlætisgjöfin er veitt til 111 starfsmanna í fullu starfi og í hlutfalli við starfsaldur. Markaðsverðmæti gjafarinnar er frá 100-500 þús kr. út frá starfsaldri. Nova mun að auki greiða launabónus til að mæta staðgreiðsluskatti starfsmanna vegna gjafarinnar. Gjöfin verður afhent starfsfólki félagsins við skráningu Nova á Aðalmarkað Nasdaq Iceland

Hluturinn á 5,11 kr.

Eins og áður segir hefst hlutafjárútboðið á föstudaginn. Hefst það klukkan 10:00 og lýkur viku síðar, 10. júní klukkan 16:00. Lýsing vegna útboðsins hefur nú verið birt og má nálgast hana hér. Áætlað er að niðurstöður útboðsins verði tilkynntar 13. júní og að gjalddagi vegna greiðslu verði 16. júní.

Í tilkynningu frá Nova segir að starfsfólk muni líkt og aðrir geta skráð sig fyrir hlutum í útboðinu. Ekki nóg með það heldur verða áskriftir starfsmanna ekki skertar undir 5 milljónum á meðan áskriftir viðskiptavina Nova verða ekki skertar undir 1 milljón og annarra undir 500 þúsund.

Í tilkynningu segir:

 „Útboðið fer fram í tveimur áskriftarbókum, Áskriftarbók A og Áskriftarbók B. Í Áskriftarbók A verður tekið við áskriftum frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. á föstu gengi, 5,11 kr. á hlut. Í Áskriftarbók B verður tekið við áskriftum yfir 20.000.000 kr. á lágmarksgengi 5,11 kr. á hlut og mun endanlegt gengi ákvarðast af áskriftum. Seldir verða 1.416.773.033 hlutir, eða sem samsvarar um 37,1% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimilt er að stækka útboðið um allt að 20%, í allt að 1.700.127.639 hluti eða sem samsvarar um 44,5% af útgefnu hlutafé félagsins.“

Almennur fjárfestafundur vegna útboðsins verður haldinn á föstudaginn klukkan 10:00 í Arionbanka í Borgartíni og verður streymt í beinni útsendingu.

Einstakur hópur starfsfólks

Í tilkynningu er haft eftir Margréti Tryggvadóttur, forstjóra Nova:

„Við erum spennt fyrir skráningu félagsins á markað og með því að gefa starfsfólki hlutabréf í félaginu viljum við einfaldlega segja TAKK. Hjá Nova er einstakur hópur starfsfólks sem á stóran þátt í velgengni Nova, sem meðal annars sést á því að við höfum verið efst fjarskiptafyrirtækja í Ánægjuvoginni 13 ár í röð, nokkuð sem við í Nova liðinu erum öll stolt af. Núna eru tímamót og nýr kafli í sögu Nova og ánægjulegt að starfsfólk verði jafnframt hluthafar í félaginu sem og viðskiptavinir“. 

 Eins er haft eftir Hugh Short, stjórnarformanni Nova og forstjóra Pt Capital LLC

Við erum mjög ánægð með starfsfólk Nova og vitum að það á stóran þátt í góðum árangri félagsins á síðustu árum. Nova hefur sýnt stöðugan vöxt á fjarskiptamarkaði og hefur náð sterkri markaðshlutdeild þar. Með því að starfsfólk verði hluthafar í félaginu verða það sameiginlegir hagsmunir fólks og fyrirtækis að vel gangi áfram.Fyrirtækið stefnir á áframhaldandi vöxt og frekari stuðning við 5G uppbyggingu, þar sem það er stefna félagsins að eiga og byggja upp virka fjarskiptainnviði.“   

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“
Fréttir
Í gær

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi
Fréttir
Í gær

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“
Fréttir
Í gær

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!