fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Ekki beinlínis geðslegt samfélag segir Kolbrún

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 11. febrúar 2022 10:30

Kolbrún Bergþórsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það segir ansi margt um ríkjandi viðhorf í þjóðfélaginu að hver sá sem minnir á að menn séu saklausir uns sekt þeirra er sönnuð uppsker hörð andmæli og þarf jafnvel að þola árásir. Honum eru samstundis gerðar upp illar hvatir og hann er sakaður um gerendameðvirkni. Þegar hin góða regla um sakleysi þar til annað sannast er farin að víkja tekur önnur regla völdin, sú að ásökun jafngildi sekt.“

Svona hefst leiðari Fréttablaðsins í dag en hann skrifar Kolbrún Bergþórsdóttir. Hún segir að þetta lögmál geri hlutina fljótlega og skilvirk en þetta lögmál eigi ekkert erindi í samfélag siðaðra manna. Hún segir að ef þessi regla eigi að ríkja þá sé gengið út frá því að enginn sé nokkru sinni borinn röngum sökum, sem sé auðvitað fjarstæða. „Dæmi finnast um slíkt og þó þau séu kannski ekki gríðarlega mörg, þá eru þau of mörg meðan einhverjum saklausum er refsað eða þarf að þjást að ósekju. Réttur hins saklausa má aldrei gleymast,“ segir hún.

Hún segir síðan að refsibylgja hafi gengið yfir þjóðfélagið að undanförnu og hafi hún beinst að þeim sem hafa verið sakaðir um margskonar ósæmilegt athæfi. „Þótt mál þeirra hafi ekki ratað til dómstóla þá fyrirfinnst annar dómstóll, dómstóll götunnar, sem í nær öllum tilfellum dæmir af miskunnarleysi og sviptir menn ærunni eins og ekkert sé, og það án þess að vita ýkja mikið um staðreyndir í viðkomandi málum. Öllu er hrúgað saman þannig að dónaskapur og ruddaskapur lendir í sama flokki og alvarleg ofbeldismál. Ruddinn er nánast talinn jafnsekur og ofbeldismaðurinn – sem er gjörsamlega galið. Engu skiptir síðan hvort þeir sem ásakaðir hafa verið segjast vera saklausir. Þeir eru flokkaðir sem blygðunarlausir lygarar,“ segir Kolbrún og bætir við að svona fari hlutirnir þegar þeir fara ekki í réttan farveg heldur sé skellt á Internetið.

Hún víkur síðan að því sem hún segir vera nýtt afbrigði í ásökunarstefnunni en í því felist að ásakanir séu bornar fram án þess að nafngreina viðkomandi. Nokkrar vísbendingar séu gefnar en þær séu ekki svo afgerandi að hægt sé að benda á ákveðinn einstakling út frá þeim, þess í stað liggi nokkrir undir grun sem þurfi síðan að bera af sér sakir eða láta eins og þeir viti ekki að þeir séu í hópi grunaðra. „Þetta er ekki staða sem setja á nokkurn mann í. Við lifum í samfélagi þar sem farið er að líta á dómhörku sem sjálfsagða og eðlilega. Ekki beinlínis geðslegt samfélag,“ segir hún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks